Grand Prix

Audrey Freyja lauk keppni a Grand prix, Baltic cup i Gdansk i Pollandi,  i gaer og stod sig mjog vel!  Hun vard nr. 35!  Audrey var eini keppandinn sem keppti fyrir Islands hond! 

2.fl. suður á morgun

2.fl. fer suður í fyrramálið til að keppa við Björninn kl. 18.30 í Egilshöll. Mæting kl.10.00 við Skautahöllina og brottför 10.30

4.fl. á leið suður

Í dag kl. 14.30 er mæting við Skautahöllina hjá 4.fl. strákunum og lagt verður af stað kl.15 til þáttöku í 1. hluta íslandsmótsins hjá þeim og fer þessi hluti fram í Egilshöll. Við óskum strákunum góðrar og ánægjulegrar ferðar og sendum þeim bestu óskir um gott gengi

Okkur þykir rétt að benda ungum strákum og stelpum í SA á þetta

Þjálfaranámskeið 1a, alm. hluti á Akureyri!
Þjálfaranámskeið 1a, alm. hluti verður haldið í íþróttahöllinni á Akureyri 21. og 22. okt. nk.  Námskeiðið gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar og er opið öllum 16 ára og eldri.  Skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ á Akureyri í síma 460-1467 eða netfang vidarsig@isisport.is fyrir fim. 20. okt.  Allar nánari uppl. eru fúslega veittar á skrifstofu ÍSÍ á Akureyri. Þjálfaranámskeið ÍSÍ eru metin til eininga í framhaldsskólum landsins. 

Tekið af heimasíðu ÍSÍ                    

Nýir óskráðir iðkendur, muna að hafa skráningarblöðin með á æfingu á morgun

Nú gerum við lokaátak í að allir iðkendur séu skráðir. Þið sem ekki eruð búin að skrá ykkur, skráið ykkur núna með td. tenglinum hér til vinstri (Skráning í félagið) eða með því að senda póst á skraning@sasport.is nú eða bara hringja í Reynir í 660-4888 og munið að vanda upplýsingagjöfina.  Ath. Þeir sem vilja staðgreiða æfingagjöldin er bent á að greiða í gegnum sinn heimabanka hægt er að leggja inn á reikning hokkídeildar SA kt. 630295-2709 reikn nr. 162- 26- 981 og gott er að setja kennitölu iðkanda í skýringu. Allir fá rauða hokkípeysu að lokinni skráningu (byrjendur sem eru á hálfugjaldi þurfa að borga 1000 fyrir peysuna) og eins geta þeir sem vilja fengið úthlutað fríu netfangi á sasport þ.e. ??????@sasport.is þegar skráning er frágengin. Umsókn um netfang má senda á reynir@sasport.is eða bara hringja í Reynir í 660-4888.    Kveðja, Hokkístjórnin

Flöskusöfnun 3., 4., 5., 6. og 7 flokkur

3., 4., 5., 6. og 7 flokkur mæting í flöskusöfnun á miðvikudaginn 12. okt. kl.17.30 inni í Höll. Þar verður úthlutað götum og treyjum. Tilmæli til foreldra, það þarf að keyra börnin á milli staða og flöskurnar upp í endurvinnslu.  Allir að mæta !!

kveðja........Foreldrafélagið

WC 2001 Suður Afrika

Já hér er hægt að horfa á klippur úr fyrstu ferð karlalandsliðssins til Suður Afríku 2001. Klippurnar eru úr leik Íslands og Grikklands.   http://www.icehockey.gr/videos/Greece1.wmv

 http://www.icehockey.gr/videos/Greece2.wmv

http://www.icehockey.gr/videos/Greece3.wmv

Bara svona til að leiðrétta þá var fyrsta seniorferðin til S-Afríku farin árið 1999

Með kveðju,      Sigurður Sveinn Sigurðsson 

Dagskrá 4.fl.mótsins í Egilshöll

Hér er hægt að skoða dagskrá 4.flokks mótsins sem verður í Egilshöll um næstu helgi.

Mmmmm Lasagna

Boðið var uppá Lasagna, gos ....

SR - SA: 7 - 3 (1-0/2-2/4-1)

SA-liðið sýnir mikil batamerki í góðum leik við SR í Reykjavík í kvöld