Karfan er tóm.
Það má með sanni segja að það hafi verið vel heppnað Barna- og unglingamótið sem Skautafélag Akureyrar og Skautasamband Íslands stóðu fyrir um helgina, árangur SA var góður. Öll úrslit verða birt á heimasíðu skautasambandsins von bráðar á slóðinni www.skautasamband.is Á þessari slóð má sjá umfjöllun RÚV um mótið http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497917/2010/02/28/18/
Íslandsmót barna- og unglinga í listhlaupi á skautum fór fram um helgina. 74 skautarar tóku þátt í mótinu frá þremur félögum Birninum, Skautafélagi Reykjavíkur og Skautafélagi Akureyrar tóku þátt, en keppt var í 11 flokkum. Sjá má augljósar framfarir í heildina meðal allra félaga og íslenskir skautarar greinilega á hraðri uppleið, en íþróttin er mjög ung. Skautasamband Íslands fagnaði um helgina 15.ára afmæli sínu en einungis 10 ár eru frá því að skautahöll var reist á Akureyri.. Skautafélag Reykjavíkur hampaði flestum gullmedalíum á mótinu, en fulltrúar Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar náðu hins vegar ágætum árangri og tryggður sér 7 verðlaun af þeim 17 sem félagið gat náð í.
Meðfylgjandi er mynd af flokki Noveice B, en þar er Urður Frostadóttir SA í 1.sæti
Í lesa meira má sjá það sem undirrituð man í fljótu bragði um verðlaun fulltrúa SA á mótinu.
Í kvöld áttust við í deildarkeppninni SA eldri og Björninn í kvennaflokki. Leikurinn fór fram í Egilshöllinni og skemmst er frá því að segja að það voru heimamenn sem unnu með þremur mörkum gegn engu. Síðustu viðureign liðanna lauk með sigri SA fyrir norðan en nú snérist það við og munaði þar mest um magnaða markvörslu Karitas í marki Bjarnarins. Hún átti stórleik, skellti í lás og krækti sér í shut-out þrátt fyrir mikla skothríð frá SA stúlkum á köflum.