Karfan er tóm.
Afsakið hvað þessi tilkynning kemur seint.
Meistaraflokkurinn bar sigur úr býtum í leik gærdagsins í Egilshöllinni með 6 mörkum gegn 3. Þrátt fyrir markamuninn var sigurinn ekki auðveldur en Björninn er með skemmtilegt lið, marga hraða leikmenn sem spila af miklum ákafa þannig að lítið ráðrúm gefst til að dóla með pökkinn. Leikurinn var jafn í upphafi og liðin skiptust á að skora. Fyrsta mark leiksins skoraði hinn ungi og efnilegi Jóhann Leifsson eftir sendingar frá Stefáni Hrafnssyni og Sigurði Sigurðssyni. Björninn jafnaði leikinn áður en SA jók forystuna aftur eftir mark frá Sigurði Sigurðssyni í power play. Björninn var hins vegar ekki hættur og Brynjar Þórðarson jafnaði leikinn fyrir lok lotunnar, staðan því 2-2 eftir 1. lotu.
Halló allir sem eru að selja kerti og seldu pappír í nóvember. Nú þarf ég að fá alla peninga til mín í síðasta lagi þriðjudaginn 15. desember. Þeim sem ekki eru búnir að sækja til mín kerti en ætla að gera það þurfa að nálgast þau í dag eða á morgunn mánudag 14. des. Við þurfum að klára þetta í vikunni.
MUNIÐ AÐ SKILA PENINGUNUM
Allý - allyha@simnet.is / 8955804, er heima eftir kl. 16:30 á mánudaginn.
Ígærkvöldi var fulltrúum skautafélags Akureyrar boðið til samkomu í Flugsafni Íslands. Boðið var í nafni Samherja hf. Í þessu boði voru mest áberandi fulltrúar ýmissa íþrótta- og tómstundafélaga á Eyjafjarðasvæðinu. Samherji hefur ákveðið að styrkja þessi félög aftur eins og þeir gerðu svo rausnarlega í fyrra og í ár hækkuðu þeir upphæðina úr 50 miljónum króna samtals í 60 miljónir. Hilda Jana Gísladóttir formaður LSA og Ollý formaður HSA veitti viðtöku 2,2 milljónum króna fyrir hönd deildanna tveggja og er það tvöhundruð þúsund krónum hærri upphæð en deildirnar fengu í fyrra - þar að auki fengu meistaraflokkar kvenna og karla í hokkí aukalega styrk til handa sínu starfi ásamt fleiri meistaraflokkum á svæðinu. Upphæðina sem um ræðir fyrir listhlaupadeildina skal nota til lækkunar á æfingargjöldum og keppniskostnaði iðkenda á grunnskólaaldri. Viljum við þakka Samherja hf. kærlega fyrir þessa mjög svo rausnarlegu gjöf og veglegt framlag til fjölskyldna barna sem æfa skauta.
Nýjar vörur komnar í hús s.s. spinner (til að æfa snúning), náttföt, flísbuxur renndar á hliðum og jakki í stíl. Krosspeysur. Reimar með steinum. Mikið úrval af pilsum.
Einnig mikið úrval af alls konar fatnaði á frábæru verði.
Tilvalið í jólapakkann :)
Nánari uppl. Rakel s. 6625260 / 4623146 eða rakelhb@simnet.is
Því miður eru allar munsturðu töskurnar uppseldar hjá framleiðanda en koma aftur í janúar, einlitu töskurnar eru til í bleiku, grænu, bláu og ljós bláu.
kv. Allý