Karfan er tóm.
Í kvöld mættust Skautafélag Akureyrar og Björninn í kvennaflokki í Skautahöllinni á Akureyri. Heimastúlkur áttu harma að hefna eftir að hafa tapað stórt í fyrsta leik 5 – 1 í Egilshöll á dögunum. Miklar leikmannabreytingar hafa verið hjá SA liðinu frá því í fyrra og mikið af byrjendum í liðinu og því á brattann á sækja. Því ríkti mikil spenna í herbúðum heimastúlkna fyrir þennan leik.SA fór betur af stað og stjórnaði fyrstu mínútum leiksins og það var þjálfarinn Sarah Smiley sem skoraði fyrsta markið eftir aðeins 35 sekúndna leik.
Það sem eftir lifði lotunnar skiptust liðin á að sækja en markenn beggja liða voru í banastuði og héldu öllum pekkjum frá möskvunum og því urðu mörkin ekki fleiri í lotunni. Í 2. lotu var allt áfram í járnum og en á 3. mínútu lotunnar var það fyrirliðinn Jónína Guðbjarsdóttir sem jók forystuna með góðu skoti frá bláu línunni í gegnum traffík og Karítas í marki Bjarnarins sá aldrei pökkinn.
Minnum á að nóg er til af kertum til að selja og safna sér inn fyrir næstu æfingabúðum.
Hafið samband við Allý í síma 895-5804.
Munið að þeir sem voru búnir að fá kerti eiga að skila af sér innkomunni á sunnudag. kl:17:30 - 19:00, í Skautahöllinni.
Gangi ykkur vel :-)