Karfan er tóm.
Í dag hófust æfingabúðirnar formlega. Þjálfararnir ásamt skauturunum sínum komu til Akureyrar seint í gærkvöldi og byrjuðu að þjálfa í morgun. Dagurinn gekk í alla staði mjög vel og voru allir ánægðir að sjá.
Bæði Joy, Karen og Tristan voru undrandi á því hversu duglegir og skemmtilegir krakkarnir okkar eru og hlakka til að þjálfa næstu daga.
Nú er kominn ís í Skautahöllina, svo er listhlaupurum fyrir að þakka, og í gærkvöldi var hóað saman í fyrstu æfinguna hjá Meistaraflokki SA. Menn voru merkilega léttir á sér og tóku klukkutíma sprikl á eitt mark innan við bláu. Það verður að segjast að þetta upphaf tímabils hefjist í fyrra fallinu en reyndar verður væntanlega ekki um reglubundnar æfingar að ræða fyrr enn um miðjan ágúst.
Garðar Jónasson er látinn
Hann Gæsi fæddist hér á Akureyri þann 6. desember 1952 og lést mánudaginn 16. júlí s.l. eftir skammvinn veikindi. Gæsi bjó alla sína tíð í Aðalstræti 74 og hóf snemma að renna sér á skautum og var leikmaður í íshokkíliði Skautafélags Akureyrar frá ungaaldri. Síðustu ár spilaði hann með “old boys” og var einn af okkar virkustu félagsmönnum. Vinnustundir hans í þágu félagsins eru óteljandi, bæði við uppbyggingu og viðhald félagssvæðis og aðstöðu sem og vinnu við almennt félagsstarf. Hann var vinur okkar og félagi, Innbæingur og heiðursmaður. Móður hans sem og öðrum ættingjum og vinum vottum við okkar dýpstu samúð.
Útför hans fer fram föstudaginn 27. júlí n.k. kl. 13:30 frá Akureyrarkirkju.
Ég var að skoða mig um á netinu og rakst á síðu sem hafði myndir af U18 landsliðinu í Kína. Endilega skoðið þær...
Krakkar athugið!
Skautaskóli fyrir börn fædd árið 2003 og fyrr. Verður dagana 8, 10, 13, 15 og 17. Ágúst frá kl:15:00-16:30. Frábært tækifæri fyrir hressa krakka að leika sér á skautum að sumri til! Góð hreyfing, skemmtilegir leikir og góð þjálfun á skautum. Verð 5.500. krónur. Innritunarupplýsingar. Allý Halla allyha@simnet.is s:895-5804.
Hlökkum til að sjá sem flesta, stráka og stelpur.
Stjórn Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar.
Hér í neðst í valmyndinni til vinstri er tímatafla æfingabúða. Allir þátttakendur fá síðan tímatöfluna afhenta útprentaða 24. júlí þegar þeir mæta fyrsta daginn á ísinn.
Fystu 3 dagana, 24., 25. og 26. júlí verða stuttir dagar (sjá tímatöflu fyrir þessa 3 fyrstu daga í frétt hér fyrir neðan) og ekki nauðsynlegt að koma með nesti. Frá 27. júlí - 5. ágúst meðan börnin frá Nottingham verða í heimsókn hjá okkur verður boðið upp á léttan hádegisverð (súpu, jógúrt, skyr og brauð) að kostnaðarlausu en að sjálfsögðu er öllum frjálst að koma með nesti ef þeir kjósa það frekar. Frá 7. ágúst til 17. ágúst verður ekki boðið upp á hádegisverð og börn beðin um að koma með hollt og næringarríkt nesti.
Allir verða að muna að mæta a.m.k. 30 mínútum áður en æfingabúðirnar byrja hvern dag.
Munið að mæta ALLTAF í viðeigandi íþróttaklæðnaði á allar æfingar, með bæði föt til að vera á ís og af-ís, góða íþróttaskó, sippuband og vatnsbrúsa.
Mikilvægt er að fara alltaf eftir fyrirmælum þess sem þjálfar, bæði á ís og afís og vera kurteis og sýna íþróttamannslega framkomu í einu og öllu.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Helgu Margréti í e-mail helgamargretclarke@gmail.com