Bikarmót krulludeildar
Leikið verður á einni helgi
Klukkan 18:45 í dag keppir Helga Jóhannsdóttir, SA á ISU Junior Gran Prix, en þær nöfnur Helga og Helga eru í Englandi, þar sem Helga keppir í Junior flokki kvenna fyrir Íslands hönd. Hægt er að fylgjast með henni í beinni útsengingu á netinu á slóðinni http://www.iceskating.org.uk/nisatvdemo
Foreldrafundur verður í fundaherbergi skautahallarinnar í kvöld fimmtudag kl 20:00.
Forráðamenn A keppenda og 15 ára og eldri B, 14 ára og eldri B og 14 ára og yngri B eru boðaðir á þennan fund til að ræða fyrirhugaða ferð á Bikarmót ÍSS sem fram fer í Reykjavík 7.-9. nóv.
Nauðsynlegt er að sem flestir mæti.
Fyrir hönd stjórnar
Jóhanna
Hækkun hefur orðið á klósettpappírnum sem við höfum verið að selja. Hann er núna í 3500 krónur.
Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband við Allý í síma:895-5804
Minnum á aðalfund foreldrafélags listhlaupadeildar SA miðvikudaginn 15. október. Fundurinn verður haldinn í fundarherbergi á 2. hæð Skautahallar og hefst kl. 20.00.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar
2. Skýrsla gjaldkera
3. Lög félagsins / Lagabreytingar.
4. Kynning/kjör á nýrri stjórn
5. Önnur mál.
Hvetjum alla foreldra til að mæta
F.h foreldrafélags, Jóhanna K. Kristjánsdóttir.
Fimmtudagskvöldið 16. okt. kl. 20:00, verður fundur með foreldrum allra A -keppenda og 14 ára og yngri B - keppenda vegna keppnisferðar suður 7. -9. nóv. Fundurinn verður í fundarherberginu í skautahöllinni. Mikilvægt er að allir mæti því ræða þarf fyrirkomulag ferðarinnar.
Sjáumst hress
Stjórnin