Meistaraflokkur rassskelltur á heimavelli
Eftir góðan leik á föstudagskvöldið vorum við rassskelltir af sama liði á laugardagskvöldið sjálfsagt með þær ranghugmyndir undir hjálmunum að við værum ósigrandi. Leikurinn fór ágætlega af stað og fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 6. mínútu þegar pökkurinn barst til Mike Boudroeau á bláu línunni sem sendi rakleitt yfir á Björn Má sem hamraði pökkinn gegnum og þvögu og í netið fram hjá Ævari Björnssyni. Arnþór Bjarnason jafnaði leikinn skömmu síðar og Egill Þormóðsson bætti strax við öðru og náði forystunni fyrir gestina. Sigurður Sigurðsson náði að jafna leikinn á 13. mínútu fyrir SA eftir sendingu frá Birni Má Jakobssyni. Tvö mörk frá SR á 30 sekúndum undir lok lotunnar gaf þeim 4 – 2 forskot en Josh Gribben minnkaði muninn í 4 – 3 á síðustu sekúndu lotunnar.