SA-Valkyrjur - Björninn. leik lokið með sigri Bjarnarins 1 - 2
Í gangi núna er leikur í meistaraflokki kvenna.
Í gangi núna er leikur í meistaraflokki kvenna.
Það verður lýsing á leiknum á síðu ÍHÍ undir tölfræði kk eða smella hér. En leiknum seinkar eitthvað vegna þess að síðasta skot í upphitun braut gler og viðgerð stendur yfir.
Það verða gerðar nokkrar breytingar á stundatöflu fyrir vorönn 2011 og þær taka gildi á mánudaginn 7.febrúar.
Vegna Bautamótsins á laugardag fellur niður æfing hjá markmönnum og 5 flokkur á að mæta á æfingu með 6 flokk kl 11 á sunnudag.
Framkvæmdastjóri félagsins, Viðar Jónsson, verður í veikindaleyfi frá störfum fram á vorið. Viðar lenti í hörðum árekstri í vondu veðri er hann var á heimleið eftir íshokkíleik í Reykjavík í fyrra, en hann var að ferja nokkra leikmenn úr kvennaliði SA. Hann hefur glímt við afleiðingar þessa slyss síðan og því var brugðið á það ráð að undirritaður myndi sinna hans störfum að einhverju leyti fram til vors. Óskum við Viðari skjóts bata svo hann geti sem fyrst hafið störf að nýju.
Fyrirspurnum varðandi félagið og skautahöllina er eftir sem áður hægt að senda á skautahollin@sasport.is
Með kveðju,
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Formaður SA.