08.04.2010
Hér má sjá nánari upplýsingar um æfingabúðirnar í Ostrava. Svara þarf fyrir 15.apríl, á netfangið hildajana@gmail.com, hvort að fólk hyggist ætla í ferðina og þá verður leitað tilboða í flug og það verður síðan til lokakynningar í kjölfarið og þá verða greidd staðfestingargjöld.
08.04.2010
Í dag kl. 11:00 mætast í Skautahöllinni á Akureyri, íslenska kvennalandsliðið og breska félagsliðið Slough Phantoms. Leikurinn er liður í íshokkímótinu NIAC sem fram fer í höllinni um þessar mundir.
07.04.2010
Ársfundur Alþjóða krullusambandsins, WCF, sem haldinn er í Cortina d'Ampezzo á Ítalíu í tengslum við Heimsmeistaramót karla í krullu, fer á spjöld sögunnar. Varaformaðurinn felldi formanninn í kosningu, fyrsta konan orðin forseti WCF.
07.04.2010
Búið er að draga í keppnisröð á Goðamótinu sem fram fer um helgina. Sjá nánar hér:
07.04.2010
Nú er þremur leikjum á NIAC lokið. Síðustu tveir leikir hafa verið á milli blárra og hvítra gegn hinum bresku í Slough Phantoms. Það er skemmst frá því að segja að þær bresku eru gríðarlega sterkar og unnu þær nokkuð auðvelda sigra á okkar stúlkum en fyrri viðureignin sem var gegn Bláum fór 12 - 1 og sá seinni sem var gegn Hvítum fór 11 - 1.
06.04.2010
Undir lesa meira má sjá þá sem skráðir eru til keppni á Goðamótið um næstu helgi, vinsamlegast lítið yfir listann og athugið hvort að hann passi ekki örugglega. Ef einhvern vantar á hann, vinsamlegast hafið samband við didda@samvirkni.is
06.04.2010
Generalprufa verður fyrir þá iðkendur sem skráðir eru í Basic test/grunnpróf ÍSS núna í vor mánudaginn 12. apríl og þriðjudagsmorguninn 13. apríl. Lesið töfluna vel yfir því iðkendum hefur verið skipt niður í litla hópa eftir því í hvaða próf þeir fara. Allir iðkendur fá tíma í generalprufu í basic hluta (áttur) og einnig æfingaís til að æfa free test element (prógrammahluta). Ef eitthvað er óljóst má hafa samband við Helgu Margréti þjálfara í gegnum tölvupóst eða á æfingu á miðvikudaginn næsta 7. apríl. Þeir iðkendur sem ekki fara í próf núna í vor eru ekki á listanum en ef þeir hafa áhuga á að koma og æfa sig þennan dag hafið þá samband við Helgu Margréti.
05.04.2010
NIAC mótið hófst í dag á leik Hvítra og Blárra og voru það þær fyrrnefndu sem báru sigur af hólmi með tveimur mörkum gegn einu. Liðin eru mjög jöfn að styrkleika og eftir fyrsta leikhluta var enn markalaust jafntefli. Í 2. lotu voru það hvítir sem skoruðu eina markið en þar var á ferðinni Flosrún Vaka sem skoraði af öryggi framhjá Margréti Vilhjálmsdóttur í marki Blárra.
04.04.2010
Á morgun hefst NIAC (Northern Iceland Adventure Cup) kvennamótið hér í Skautahöllinni á Akureyri. Á mótinu keppa tvö lið sem búin voru til sérstaklega út af þessu móti, auk landsliðsins og breska liðsins Slough Phantoms en þetta er í fyrsta skiptið sem hingað kemur breskt hokkílið. Íslensku liðin tvö eru sett saman úr landsliðsleikmönnum auk nokkurra annarra til, og eru kennd annars vegar við blátt og hins vegar við hvítt.