Úrslit á Akureyrarmóti 2006

Rétt í þessu var Akureyrarmótinu okkar að ljúka.  Gekk mótið frábærlega vel og stóðu allir sig vel, jafnt keppendur og þeir sem sýndu!

Undir "lesa meira" eru úrslitin!

Leikur númer 2 í úrslitum

Á morgun Fimmtudag kl.20,00 verður 2. leikurinn í úrslitakeppni meistaraflokks karla hér í Skautahöllinni á Akureyri. Nú er áríðandi að allir stuðningsmenn mæti og hvetji sína menn.

5., 6. og 7.flokks mót í Laugardal 8. og 9. apríl

Vegna ferðar til Rvk. næstu helgi verðum við í Skautahöllinni (fundarherbergi) miðvikudaginn 5. apríl  frá kl. 20:00-21:00.  og tökum á móti greiðslu sem er kr. 9.500,-  pr. ferð. Þeir sem eiga inneign í sjóð geta látið það ganga upp í greiðslu. Ath. ekki er hægt að greiða með korti.  Einnig munum við afhenda lista yfir það sem þarf að hafa með. Allar nánari upplýsingar veittar við greiðslu.  Smelltu hér til að skoða dagskrá mótsins

Til upplýsingar fyrir OldBoys

Á morgun miðvikudag er Listhlaupið með mót til ca: 21,00 og þá fær meistaraflokkur að fara á svellið í ca. 30 mín. með góðfúslegu leyfi OldBoys manna og gæti æfing OldBoysara því dregist framundir kl. 22,00

Mogginn enn í aprílgöbbunum

Því miður, verð ég að segja, er fréttin af úrslitaleiknum í MBL í dag röng.

1. leikur í úrslitum tapaðist 8 : 1

Þá er fyrsta úrslita leik lokið með sigri SRinga 8 : 1. Undirritaður sá ekki leikinn en skilst að hann hafi verið köflóttur fyrir SA liðið sem átti bæði góð móment og slæm, en greinilega fleiri slæm. En fall er fararheill og við grátum ekki Björn Bónda heldur söfnum liði og gerum betur á Fimmtudaginn næsta hér Skautahöllini á Akureyri kl. 20,00. Ágæta lýsingu á leiknum má lesa á ÍHÍ síðunni með því að smella hér.

Akureyrarmót

Akureyrarmót haldið í Skautahöllinni á Akureyri 5. apríl 2006

 

 

16:00   Mótssetning

16:05   Upphitun 8 ára og yngri C

16:10   Keppni 8 ára og yngri C hefst

16:30   Upphitun 10 ára og yngri C, fyrri hópur (6stk)

16:35   Keppni hjá fyrri upphitunarhóp

16:50   Upphitun 10 ára og yngri C, seinni hópur (5stk) + 12 ára og yngri C ( 1keppandi)

16:55   Keppni hjá seinni upphitunarhóp ásamt 12 ára og yngri C

17:10   Sýning

17:20   Heflun

17:30   Upphitun 10 ára og yngri A og 12 ára og yngri A

17:35   Keppni 10 ára og yngri A

17:45   Keppni 12 ára og yngri A

18:05   Upphitun Novice og Junior

18:15   Keppni Novice

18:30   Keppni Junior

18:35   Sýning

18:45   Sýning

18:55   Heflun

19:10   Upphitun 10 ára og yngri B

19:15   Keppni 10 ára og yngri B

19:25   Upphitun 12 ára og yngri B fyrri hópur (5stk)

19:30   Keppni hjá fyrri upphitunarhóp

19:45   Upphitun 12 ára og yngri B seinni hópur (4stk)

19:50   Keppni hjá seinni upphitunarhóp

20:00   Upphitun 14 ára og yngri B fyrri hópur (4stk)

20:05   Keppni hjá fyrri upphitunarhóp

20:20   Upphitun hjá 14 ára og yngri B seinni hópur (3stk)

20:25   Keppni hjá seinni upphitunarhóp

20:35   Upphitun hjá 15 ára og eldri B

20:40   Keppni 15 ára og eldri B

20:55   Keppni lokið, verðlaunaafhending

 

Þá er komið að því!!!

Já gott fólk þá er loksins komið að því sem allir íslendingar hafa beðið eftir. Úrslit í meistaraflokki karla 2005-2006

Fyrsti leikur verður háður í kvöld, en það eru S.A. og S.R. spila til úrslita. Gengi S.A. í vetur hefur verið brösótt, en undir það síðasta hefur liðið verið að smella saman. S.R. hefur leikið vel í vetur og aðeins tapað einum leik, en það var gegn S.A. Leikurinn hefst kl 20:00 og verður spilaður í laugardalnum í Hilmarshúsi, við vonum að allir mætti og styðji sitt lið. ÁFRAM S.A.!!!!!!!

5., 6. og 7.fl.mót verður 8. og 9. apríl

Nú hafa SRingar boðið 5., 6. og 7.flokknum okkar til barnamóts helgina 8. og 9. apríl næstkomandi

Winnipeg Falcons unnu 1 : 9

Í morgun spiluðu SA stelpurnar seinni leikinn við stelpurnar í Winnipeg Falcons og töpuðu 1 : 9