SA-Narfi sem átti að vera í kvöld

Leiknum er frestað til næsta þriðjudags

Breyttir æfingatímar!

Allar æfingar falla niður föstudaginn 20. janúar vegna Íslandsmeistaramóts sem haldið verður í Skautahöllinni um helgina.  Einnig falla allar æfingar niður á laugardaginn nema æfingin milli 8 og 9 þar sem 1. flokkur mætir!  Við viljum hvetja alla til þess að koma og horfa á okkar fremstu skautara keppa, en keppnin hefst kl. 9:45 á laugardagsmorgun!

Mótaskrá fyrir Landsbankamótið um helgina

Hér er komin mótaskráin fyrir Landsbankamót helgarinnar í Egilshöll

Mót 5., 6. og 7. flokks í Egilshöll í Rvk. 20.-22. janúar 2006

Vegna ferðar til Rvk. næstu helgi verðum við í Skautahöllinni (fundarherbergi) miðvikudaginn 18. janúar frá kl. 20:00-21:00. og tökum á móti greiðslu sem er kr. 9.500,. Þeir sem eiga inneign í sjóð geta látið það ganga upp í greiðslu. Ath. ekki er hægt að greiða með korti.  Einnig munum við afhenda lista yfir það sem þarf að hafa með.

Allar nánari upplýsingar veitum við á morgun miðvikudag.        Foreldrafélagið

5. - 7.fl. Muna flöskusöfnunina í dag kl 17:45 inni í Höll

5. - 7.fl. Muna flöskusöfnunina í dag kl 17:45 inni í Höll

Denni kveður

Núna eftir áramótin lét  Sveinn Björnsson, betur þekktur sem Denni, af störfum í skautahöllinni en hann hefur starfað hér allt frá því að húsið var tekið í notkun og reyndar vann hann einnig við byggingu  þess hjá SJS verktökum á sínum tíma.

 Denna þarf ekki að kynna fyrir skautaiðkendum því að hann hefur spilað íshokký mun lengur en elstu menn muna og verið þjálfari yngri flokka og í kvennahokkýi.

 Denni vann fyrst fyrir félagið sem svellagerðarmaður á meðan útisvellið var og þurfti þá að glýma við veðurguðina sem oft voru erfiðir andstæðingar og sendu honum stundum sunnanátt og hlýviðri þegar spáð hafði verið frosti og stillu.

 Nú þegar hann hefur ákveðið að söðla um og gerast einn af hetjum hafsins sendir Skautafélag Akureyrar  Denna bestu kveðjur og þakklæti fyrir óeigingjart starf í þágu félagsins og óskar honum allra heilla á nýjum starfsvettvangi.

Björninn - SA 2:6

Í gær laugardag, kl. 16,00 fór fram viðureign í meistaraflokki karla Björninn - SA og úrslit urðu þau að SA vann 2 gegn 6

Engin 3.fl. æfing í dag

Í dag kl. 17,00 er krullumót á svellinu og því fellur 3.fl. æfingatíminn niður.

Kæru foreldrar/forráðamenn! 5. 6. og 7. flokks barna

Nú er komið að fyrri ferð yngri krakkanna til Reykjavíkur (Egilshöll) og verður hún helgina 20.-22. janúar.  Lagt verður af stað eftir hádegi föstudaginn 20. jan. og komutími sinnipartinn þann 22.  Þeir sem ætla að leyfa börnunum sínum að fara með verða að láta vita í síðasta lagi föstudaginn 13. janúar á netföngin solveighulda@plusnet.is eða baejarv@centrum.is 

Litháen-Ísland 5-2 (1-1, 3-0, 1-1)

Strákarnir í U20 liðinu okkar töpuðu fyrir gestgjöfunum í leik sem lauk síðdegis í dag. Litháarnir voru vel samæfðir og geysilega snöggir í öllum aðgerðum að auki nutu þeir þess að hafa hvílst í gær.