Karfan er tóm.
Ég vil minna 1.hóp á hópmyndatökuna sem verður á morgun miðvikudag á æfinga tíma. Muna að koma með skautakjól eða annað sem þið viljið vera í á myndunum.
Einnig vil ég minna alla hópa í 2.hóp á myndatökuna sem er föstudaginn 16. nóvember einnig á æfingartíma.
Að lokum vil ég minna foreldra/forráðamenn að kíkja í skautatöskuna eftir hverja æfingu næstu vikur því nú fara að koma heim miðar vegna andlitsmyndatöku. Hún fer fram í íþróttahöllinni og er gengið inn vinstra megin við höllina gegnt Þórunnarstræti.
Kveðja Kristín K
Foreldrafélag SA . Fréttabréf . Kæru iðkendur og foreldrar.....................................
Iðkendalisti Listhlaupadeildar 2007-8. Ef einhver nöfn vantar þá vinsamlega hafið samband annagj@simnet.is
Það eru enn margir sem eiga eftir að greiða keppnisgjaldið fyrir mótið sem er núna í lok nóvember. Vinsamlegast gerið skil sem fyrst :-) og látið vita ef einhverjir ætla ekki að taka þátt.
þegar greiða á keppnisgjöld er best að greiða þau inn á reikning listhlaupadeildar 0162-05-268545 kt: 510200-3060. Setja nafn iðkanda sem skýringu. það kemur í veg fyrir að mistök verði, s.s. að fólk sé rukkað um ógreidd gjöld.
Opinn timi á miðvikudaginn 14. nóvember frá kl. 16:30 - 17:30. Þá er hægt að að koma og sækja perur til að selja. Einnig er hægt að koma með skautakjóla og selja ef fólk vill. Merkja þá með nafni og símanúmeri ef þeir eru skildir eftir hjá okkur.
Minnum einnig á dansinn. Síðasti skráningardagur 12. nóvember.
Edea skautar nr.235 eru til sölu. Lítið notaðir. Upplýsingar gefur Allý í síma 895-5804
Við viljum minna á skráninguna í dansinn. 6 vikna námskeið (1* í viku) fyrir ca3800-4000 krónur. Skráning á krikri@akmennt.is
Minnum einnig á að greiða keppnisgjöldin fyrir haust og bikarmótið 23.-25. nóvember.