Tímaplan fyrir Bikar og Haustmót hefur verið gefið út. Tímasetningar eru með fyrirvara um breytingar. Ef einhver sem hefur skráð sig í keppni ætlar ekki að keppa þá væri mjög gott að vita það sem allra allra fyrst.
Næsta barnamót, Brynjumótið er nú á næsta leiti eða þann 17. og 18. nóv. næstkomandi. Bara svona að minna á það svo allir geti farið að láta sig hlakka til. (O;
"Denni" hefur nú valið úrtökuhópinn fyrir karlalandsliðið. Alls eru það 33 kvikindi sem berjast um sæti og verður það eflaust erfitt val að velja í hópinn, því hann er annsi föngulegur.