Fimmtudagsæfingar!

Á morgun verða æfingar sem hér segir: 3. og FG hópur (svellinu skipt í tvennt) milli 16 og 17, CDE hópur milli 17 og 18 og AB hópur milli 18 og 19. Þetta eru síðustu æfingar vetrarins! Munið svo eftir skautamaraþoninu um helgina!

Maraþon

Foreldrar og iðkendur (keppendur í  A, B, C) sem ætla að taka Þátt í marþoninu eru beðnir að koma í Skautahöllina og athuga hvernær iðkendur eru á svellinu. Einnig geta foreldrar þá skráð sig á vaktir.

Iðkendur í 1 og 2 hóp eru velkomnir á svellið á bilinu 11:00-14:00 á laugardaginn 12. maí. Það skal tekið fram að ekki er um kennslu að ræða heldur geta iðkendur skautað frjálst.

Aðalfundur Listhlaupadeildar

Aðalfundur Listhlaupadeildar verður haldinn fimmtudaginn 17. maí kl: 16:00 í Félagsherberginu í Skautahöllinni. Vonumst til að sjá sem flesta. Kosið verður í stjórn deildarinnar. Ath. breyttan fundartíma, :-)

Árshátíð Skautafélagsins

 Stefnt er að því að halda árshátíð Skautafélagsins...

Fundur!!!!!

Halló!!! Það verður fundur miðvikudagskv. kl:20:00 - 21:00  vegna maraþons og tilvonandi æfingabúða.

Aðalfundur Skautafélags Akureyrar

Aðalfundur Skautafélags Akureyrar verður haldinn þann 17. maí kl. 20:00 í Skautahöllinni. Fram fara venjuleg aðalfundarstörf.

Formaður félagsins hefur sent til formanna deildanna beiðni um að kannað verði hvort einhverjir hafi áhuga á að taka sæti í aðalstjórn félagsins. Reyndar er ekki alveg komið á hreint hverjir af núverandi stjórnarmönnum munu gefa kost á sér áfram en ljóst er að einhverjar breytingar verða. Talið er nauðsynlegt að hver deild eigi fulltrúa í aðalstjórninni, æskilegt að þar sitji tveir menn frá hverri deild. Auk þess er rétt að vekja athygli á breytingu sem tengist viðurkenningunni á SA sem fyrirmyndarfélagi ÍSÍ. Gerð er krafa um það í fyrirmyndarfélagi að hver deild sé með áheyrnarfulltrúa á aldrinum 16-25 ára í stjórn hjá sér.

Æfingatímar næstu 3 daga!

Hér getið þið séð æfingatíma næstu daga!

ATH!

Við viljum benda öllum á að fylgjast VEL með heimsíðunni næstu daga þar sem breytingar geta orðið með litlum fyrirvara.  Það er talsverð aðsókn hópa á svellið og vegna þess getur þurft að breyta æfingatímum.  Það er nóg að kíkja kvöldið áður til að vera viss!

Æfingar á föstudag og um helgina

Sjá "lesa meira"

Maraþon og æfingabúðir

Við hjá Listhlaupadeild  Skautafélags Akureyrar í samvinnu við Helgu þjálfara stefnum að því að hafa skautabúðir í lok júlí og 2 vikur í ágúst. Til að ná niður kostnaði þá ætlum við að fara í ýmsa fjáröflun, þar á meðal skautamaraþon. Við héldum fund með foreldrum í Skautahöllinni í kvöld og þar voru málin rædd.