Ef þetta kemur manni ekki í "gírinn " fyrir næsta vetur....

http://www.mexicohockey.com/download-file-5.html

U 20. smá klippa með strákunum okkar!!

http://www.mexicohockey.com/download-file-40.html

Jan Kobezda ráðin aftur!

Jan kobezda hefur aftur verið ráðin sem þjálfari skautafélags akureyrar.  Ekki er þó vitað hvort kappinn ætlar sér að spila með okkur næsta vetur. Vegna meiðsla í mjöðm sem hann hlaut fyrir nokkrum árum og urðu til þess að hann þurfti að hætta spila sem atvinnumaður. S.A munu nú enn eitt árið missa leikmenn því Birkir ætlar sér að leggja land undir fót, og reyna fyrir sér í danmörku sem er bara gott og blessað. Ekki er vitað hvað Mike Kobezda og Tibor Tatar ætla sér en það kemur í ljós síðar. Jón Ingi kemur þó aftur og verður hann góð viðbót fyrir liðið og jafnvel fleiri "gömul" S.A. andlit gætu einnig bæst í hópinn fyrir næsta vetur. Þannig að vonandi verður næsti vetur hinn skemmtilegasti. ÁFRAM S.A.!!!

Breytingar

Á þingi Íshokkísambands Íslands sem haldið var um helgina var m.a. samþykkt að breyta stigagjöf í Íslandsmóti karla þannig að fyrir unninn leik fáist 3 stig en eitt stig fyrir jafntefli. Ef leikur endar í jafntefli eftir venjulegan leiktíma verður framlengt um 2 x 10 mín, fjórir útispilarar gegn fjórum, og hlýtur sigurvegarinn úr framlengingunni aukastig. En ef enn er jafnt eftir framlengingu tekur við vítakeppni. Á þinginu var Viðar Garðarsson endurkjörinn formaður Íshokkísambandsins en auk hans voru þau Margrét Ólafsdóttir, Bjarni Bjarnason, Bjarni Gautason og Sigurður Sigurðsson kosin í aðalstjórn. Fyrsti varamaður var kosinn Birna Björnsdóttir, fyrrum gjaldkeri íshokkídeildar SR. Auk hennar eru þeir Hallgrímur Ingólfsson og Héðinn Björnsson varamenn. Nánar um þingið má lesa á heimasíðu ÍHÍ.                                    Frétt þessi er tekin af heimasíðu Skautafélags Reykjavíkur. skautafelag.is

spáið í þetta.

Bandarísk sjónvarpsstöð hefur raðað 60 íþróttagreinum eftir því hversu erfiðar þær eru.  Í efsta sæti eru hnefaleikar og síðan koma íshokkí, amerískur fótbolti og körfubolti.  Knattspyrnan er í 10. sæti og síðan koma alpagreinar skíða í 11. sæti.  Í 29. sæti er skíðastökkið og skíðagangan er í 31. sæti.  Neðst á listanum er stangveiði.

Sumar!!

Já sumarið er víst komið og þá er um að gera að skella sér í línuskautana. Eitthvað munu frétta tilkynningar hérna hægast á sér, en við reynum að henda einhverju hérna inn svona við og við. GLEÐILEGT SUMAR!!!!!

Aðalfundur SA

Aðalfundur SA: Kona í fyrsta sinn formaður Skautafélagsins

Þau tíðindi urðu á aðalfundi Skautafélagsins í kvöld að Þórdís Ingvadóttir var kjörin formaður aðalstjórnar og er hún fyrsta konan sem kjörin er í það embætti.

Aðalfundur

Aðalfundur
Skautafélags Akureyrar
verður haldinn í Skautahöllinni fimmtudaginn 26. maí kl. 20:00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál. Kaffiveitingar.

Skautafélag Akureyrar hvetur alla sem vettlingi geta valdið, jafnt krullufólk, listhlaupsfólk og hokkífólk, til að mæta á aðalfund SA, en fundurinn er jafnframt aðalfundur hverrar deildar fyrir sig. Meðal annars verður kosið í stjórnir félagsins og allra deilda þess. Höldum lífi í félaginu og stuðlum að öflugri starfsemi á komandi árum. Mætum á aðalfund!

Uppskeruhátíðin á fiðlaranum

Eins og margoft  hefur komið fram hér á sasport.is var sameiginleg árs- og uppskeruhátíð SA og Narfa haldin á Fiðlaranum laugardagskvöldið 21. maí. Maturinn hjá Helga var frábær, góð skemmtiatriði frá Ella og Co. og "Fíllin" stóð líka fyrir sínu. Á hátíðinni voru veittar viðurkenningar í meistaraflokkum karla og kvenna ásamt 2. flokki drengja.

Árshátíð i kvöld

Jæja lesendur góðir. Í kvöld eru herlegheitin. Fyrsta sameiginlega árs- og uppskeruhátíð SA og Narfa. Narfarnir ríða á vaðið sem gestgjafar.

Nú koma allir sem vettlingi geta valdið. Leikmenn, frændur frænkur, foreldrar, forráðamenn og stuðningsmenn SA og Narfa.