12.01.2010
Búið er að draga í keppnisröð fyrir Reykjavík International mótið um helgina. Þar er einnig að finna tímatöflu. Sjá
HÉR.
12.01.2010
Minnum á tímann í Laugargötu í dag kl. 17-18 :)
11.01.2010
Riðlakeppni Janúarmótsins lauk í kvöld. Garpar unnu A-riðil, Mammútar unnu B-riðil.
11.01.2010
Í kvöld fer fram þriðja umferð riðlakeppni Janúarmótsins.
11.01.2010
Á morgun þriðjudaginn 12. janúar verður morgunæfing fyrir þá sem fara á Rig um næstu helgi. Þeir sem ekki fara á Rig eru líka velkomnir. Æfingin hefst stundvíslega kl. 06:30 og lýkur 07:20 eins og fyrir áramót, mæting kl. 06:15 :)
10.01.2010
Rétt í þessu var að ljúka úrslitaleiknum á HM í Tyrklandi þar sem Ísland tapaði fyrir Ástralíu 1 - 3. Í gær unnu okkar menn þó mikilvægasta sigurinn á Nýja Sjálandi því með þeim sigri tryggði liðið sér farseðilinn uppúr 3. deildinni og munu því spila í 2. deild að ári. Þrátt fyrir að því takmarki hafi verið náð í gær var leikurinn í dag mikilvægur því stefnan er alltaf sett á sigur. Ástralía er enn aðeins sterkari en við og enn ætlar að verða einhver bið á því að við náum að landa sigri á móti þessum andfætlingum okkar - en biðin styttist.
09.01.2010
Í kvöld tryggði SA sér fyrsta sigurinn í vetur gegn Birninum í kvennaflokki, í æsispennandi viðureign þar sem úrslitin réðust ekki fyrr enn á síðustu sekúndunni, í orðsins fyllst merkingu. Nokkuð jafnræði var með liðunum en Björninn var þó alltaf skrefinu á undan. Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 16. mínútu þegar Hanna Heimisdóttir opnaði markareikninginn fyrir Björninn eftir varnarmistök SA.
08.01.2010
Auglýst er eftir liðum sem ætla að taka þátt í Íslandsmótinu í krullu 2010. Þátttökutilkynningar berist í síðasta lagi 18. janúar.
07.01.2010
Á laugardaginn verður stórleikur í höllinni þegar eldra kvennalið SA tekur á móti Birninum. Björninn hefur verið með sterkasta liðið í vetur en á meðan tvískipting SA liðsins vetur veikti liðið/liðin í upphafi hafa þau jafnt og þétt verið að styrkjast og nú ætla SA konur sér ekkert annað en sigur.
07.01.2010
Íslenska landsliðið vann N-Kóreu í gær með 6 mörkum gegn 3 og dag voru heimamenn lagðir að velli 8 - 2. Það þýðir að liðið er komið í úrslit og spilar næst á móti Nýja Sjálandi á laugardaginn. Með sigri tryggir liðið sér hreinan úrslitaleik á móti Ástralíu um gullið á sunnudaginn og það er næsta víst að það verður hörkuleikur. Áfram Ísland!