11.10.2007
Undir lesa meira er dagskrá Haustmóts sem haldið verður í Egilshöll dagana 19.-21. október (birt með fyrirvara um breytingar). Á því móti munu eftirtaldir keppnisflokkar keppa: Senior, Junior, Novice, 12 ára og yngri A, 10 ára og yngri A, 8 ára og yngri A, 12 ára og yngri B, 10 ára og yngri B og 8 ára og yngri B.
11.10.2007
Dagskrá Sparisjóðsmóts sem haldið verður nk. sunnudag milli 8 og 13 verður birt á föstudag. Fylgist vel með! Á Sparisjóðmótinu keppa allir iðkendur A og B keppnisflokka.
11.10.2007
Þeir sem eru að fara að keppa á Bikarmótinu helgina 19-20 október eiga að vera búnir að greiða keppnisgjöldin í síðasta lagi 16. október. Gjaldið fyrir 1 dans er 2500 kr. og fyrir 2 dansa 4000 kr. Einnig er foreldrafundur á mánudagskvöldið 15. okt. með foreldrum þeirra barna sem eru að fara á Bikarmótið. Áríðandi að allir mæti.
11.10.2007
Föstudaginn 12. október kl: 19:00 verður dregið í keppnisröð fyrir Sparisjóðsmótið. Einnig þarf að vera búið að greiða keppnisgjöldin krónur 1500 fyrir þann tíma.
10.10.2007
Æfingar falla niður sunnudaginn 14 okt vegna móts hjá listhlaupadeild.
10.10.2007
Keppnisgjöld fyrir Sparisjóðsmótið er 1500 krónur og greiðist í síðasta lagi á föstudag 12/10 Reikningsnúmer 0162-05-268545, Kennitala 510200-3060. Látið nafn keppanda fylgja með.
09.10.2007
Sl. sunnudag var frábær mæting í prufutíma í bolta pílates. Eins og áður segir verða tímarnir á fimmtudögum milli 19:30 og 20:30 í vetur, þetta verða blandaðir tímar af bolta pílates og pallatímum. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í vetur skulu mæta 19:15 á Bjarg á fimmtudaginn 11. október (næsta fimmtudag) með 3000 kr. og skrá sig í anddyrinu hjá Allý, þetta verð miðast við tíma fram að áramótum, eftir áramót verður aftur skráning. Ef þið viljið vera með en af einhverjum ástæðum komist ekki í fyrsta tímann þá getið þið haft samband við Helgu þjálfara í síma 8214258 eða í emaili á helgamargretclarke@gmail.com.
09.10.2007
Á morgun þarf að breyta heflunartíma og þar með breytist æfingatími hjá 4. hóp. Æfingin hjá 4. hóp verður því milli 17:10 og 17:55! Æfingar hjá öðrum hópum haldast óbreyttar! Þessi breyting á bara við um morgundaginn ekki næsta miðvikudag!
09.10.2007
Kvennaflokkur spilar kl 20.15 föstudagskvöld og 2 flokkur strax á eftir eða um 22.30. Á laugardag spilar kvennaflokkur kl 18.15 og 2 flokkur kl 21.00.
07.10.2007
Jæja, þá er fyrsta Bikarmótinu í 4.fl. lokið og SA þakkar Birninum fyrir komuna og góða skemmtun um helgina. Björninn mætti með tvö lið og hafði nokkra yfirburði á þessu móti og sjá mátti afar skemmtilega leiki þegar þeir tókust á innbyrðis. SA-liðið átti við ofurefli að etja en stóðu sig eins og hetjur og létu ekki bugast við mótlætið heldur börðust eins og sannir víkingar alveg fram á síðasta pökk. Mótinu lauk svo um hádegisbil með pizzaveislu og vonum við að allir hafi átt gleðilega helgi og góða heimferð. Einnig var leikur í 2.fl.