Hokkíleikur fyrir stelpur hjá um helgina - Global Girls Game

Global Girls Game fer fram um helgina en þá verða spilaðir íshokkíleikur kvenna um allann heim og í öllum heimsálfum. Öllum stelpum - óvönum sem vönum - gömlum sem ungum er boðið að koma og spila íshokkíleik saman í Skautahöllinni á Akureyri sunnudaginn 17. febrúar kl. 9.55. Endilega bjóðið vinum og fjölskyldumeðlimum að taka þátt í þessu en hægt er að fá allann búnað lánaðan fríkeypis fyrir viðburðinn. Global Girls Game

SA Íslandsmeistari í 4. flokki

SA varð um helgina Íslandsmeistari í 4. flokki í bæði keppni A- og B- liða. Íslandsmótið er leikið í formi helgarmóta en liðin spila 12 leiki á tímabilinu en þetta er yngsti aldursflokkurinn þar sem keppt er til Íslandsmeistara. Bæði liðin unnu alla sína leiki í Íslandsmótinu og fengu Íslandsbikarinn afhentan í lok síðasta mótsins nú um helgina sem fram fór í Egilshöll. Til hamingju öll með frábæran árangur.

SA deildarmeistarar í Hertz-deild kvenna

Kvennalið SA tryggði sér deildarmeistaratitlinn í Hertz-deild kvenna um helgina þegar liðið lagði Reykjavík að velli tvívegis með sömu markatölunni, 5-1. Liðið tryggði sér einnig með sigrinum heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni sem leikin verður í apríl. SA hefur farið taplaust í gegnum tímabilið en liðið hefur sigrað Reykjavík í öllum 8 leikjum vetrarins og 40 mörk í plús svo yfirburðir liðsins hafa verið miklir.

SA Víkingar deildarmeistarar

SA Víkingar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í Hertz-deild karla á laugardag þegar liðið lagði Björninn í framlengingu. SA Víkingar tryggðu sér einnig heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni sem hefst í mars en liðið hefur unnið 10 af 12 leikjum sínum í deildarkeppninni í vetur. Björninn og SR keppast nú um hvort liðið mætir Víkingum í úrslitakeppninni en hvort liðið á 3 leiki eftir en SA Víkingar 4.

Gimli Cup 2018

Tvær umferðir búnar í Gimli Cup

Reykjavíkurleikarnir - Dagur 3

Keppni sunnudagsins var mjög hörð og enduðu leikar þannig að Aldís Kara Bergsdóttir landaði silfrinu með nýju stigameti í Junior og nýju íslensku stigameti, en hún hlaut samanlagt 108.45 stig. Marta María Jóhannsdóttir landaði bronsinu með persónulegu stigameti, en hún hlaut samanlagt 107.12 stig

Reykjavíkurleikarnir - Dagur 2

LSA stúlkur stóðu sig gríðalega vel og urðu til persónuleg met í báðum flokkunum sem við áttum keppendur í á laugardaginn. Júlía Rós Viðarsdóttir landaði silfri í Novice á nýju persónulegu meti og Marta María Jóhannsdóttir og Aldís Kara Bergsdóttir standa í öðru og þriðja sæti að loknum fyrri keppnisdegi.

Reykjavíkurleikarnir 2019 - Dagur 1

REYKJAVIK INTERNATIONAL GAMES (RIG) 2019 - Keppni í listhlaupi hófst á föstudaginn 1. febrúar. RIG er stærsta mót vetrarins sem haldið er af Skautasambandi Íslands. Á þetta mót koma fjölmargir erlendir keppendur og í ár eru þátttakendur frá 14 löndum allsstaðar að úr heiminum, Azerbaijan, Ástralíu, Chines Taipei, Finnlandi, Frakklandi, Bretlandi, Grikklandi, Indónesíu, Ítalíu, Kasakstan, Noregi, Nýja-Sjálandi, Suður-Afríku, Sviss auk Íslands.