Komnar með aðra hönd á bikarinn

SA sigraði Björninn í öðrum leik liðanna í úrslitum mfl. kvenna í gærkvöldi. Liðið getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli á morgun.

Sigur í fyrsta leik í úrslitarimmunni

SA sigraði Björninn, 7-3, í fyrsta leik í úrslitakeppni meistaraflokks kvenna. "Við höfum leikið betur, en ég er ánægður með að fyrsta leik sé lokið og stressið búið," sagði þjálfari SA að leik loknum. Birna Baldursdóttir skoraði þrjú mörk í kvöld.

SA - Björninn 7-3 (leik lokið)

Leikur SA og Bjarnarins hófst í Skautahöllinni á Akureyri um kl. 19.40.

Íslandsmótið í krullu: Fífurnar fjórða liðið inn í úrslitin

Með sigri í lokaumferðinni tryggðu Fífurnar sér sæti í úrslitakeppninni án þess að þurfa aukaleik til. Liðið fylgir Mammútum, Víkingum og Fálkum í úrslitin. Mammútar deildarmeistarar.

Íslandsmótið í krullu: Níunda umferð

Í kvöld, mánudagskvöldið 19. mars, fer fram níunda og síðasta umferð deildarkeppni Íslandsmótsins í krullu.

Vinamót LSA og Slippsins 24-25 mars.

Þá eru orðin til drög að dagskrá fyrir vinamót LSA og Slippsins árið 2012, auk þess sem dregið hefur verið í keppnisröð. Endilega lesið yfir og látið okkur vita ef eitthvað hefur misritast hjá okkur á netfangið motstjori@listhlaup.is

Coupe de Printemp: Okkar stelpur stóðu sig vel

Hrafnhildur Ósk í 15. sæti, Elísabet Ingibjörg í 17. sæti.

Íslandsmótið, úrslitakeppni: SA-Ásynjur - Björninn

Fyrsti leikur í úrslitakeppni meistaraflokks kvenna verður í Skautahöllinni á Akureyri þriðjudagskvöldið 20. mars og hefst kl. 19.30.

HM kvenna: Íslenska liðið í 4. sæti

Stelpurnar okkar enduðu í 4. sæti í II. deild B á Heimsmeistaramótinu. Anna Sonja valin besti varnarmaður mótsins.

Minningarsjóður Magnúsar Einars Finnssonar auglýsir eftir styrkumsóknum

Minningarsjóður Magnúsar Einars Finnssonar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir verkefni tengdum Skautafélagi Akureyrar. Styrkirnir eru ætlaðir félagsmönnum sem vilja með einhverjum hætti láta gott af sér leiða í þágu félagsins, s.s. er varðar þjálfun, menntun, fræðslu, keppni eða hvað eina annað er tengist félaginu í heild og félagsmönnum þess.