Tímtafla fyrir viku 2

Hér má nálgast tímatöflu fyrir viku 2.

Aðalfundur Krulludeildar: Stjórnin endurkjörin

Tíðindalítið á aðalfundi. Lífið færist aftur í krulluna í byrjun september.

Skautaskólinn

Tímatafla, vika 1

Þá er komin tímatafla fyrir viku 1

Afís byrjaður

Afís æfingar eru byrjaðar fyrir æfingabúðir. Æfingabúðir hefjast mánudaginn 2 júlí.

Skautaskóli í júlí 2012 fyrir hressa krakka fædda 2004 – 2007

Í skautaskólanum verður lögð áhersla á leiki, skemmtun og gleði á ís og í næsta nágrenni Skautahallarinnar. Skautaskólinn er fyrir hádegi frá kl. 9 – 13.

Aðalfundur Skautafélagsins - ný stjórn

Aðalfundur Skautafélagsins fór fram á fimmtudagskvöldið í Skautahöllinni. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf og svo stiklað sé á stóru yfir það sem fram kom á fundinum þá má helst nefna góða árangur deilda á árinu 2011. Margir sigrar unnust í keppnisgreinunum þremur og átti Skautafélagið flesta Íslandsmeistara og flesta landsliðsmenn allra akureyskra íþróttafélaga og fengu viðurkenningar fyrir það í hinu árlega hófi Akureyrarbæjar um áramótin.

Aðalfundur foreldrafélags LSA

Aðalfundur foreldrafélags LSA verður haldinn í skautahöllinni miðvikudaginn 30. maí nk. kl. 19 (strax á eftir fundi um skautabúðir). Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, m.a. kosning í stjórn. Sitjandi stjórn mun áfram gefa kost á sér, en æskilegt er að fá 2 foreldra til viðbótar í þetta skemmtilega starf. Þeir sem eru áhugasamir um framboð til stjórnar eru beðnir um að senda tölvupóst á jona@nordlenska.is. Boðið verður upp á kaffi og með‘ðí. Besta kveðja, Jóna, Edda, Vilborg og Inga

Æfingabúðir í sumar

Halló þið öll sem að ætlið í skautaæfingabúðir í sumar

Það eru engar æfingar í Laugargötu á morgun.