20.05.2020
Boðað er til aðalfundar Skautafélags Akureyrar fimmtudaginn 28. maí kl. 20.00 í kaffiteríunni í íþróttahöllinni. Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta en allir skuldlausir félagsmenn 16 ára og eldri hafa atkvæðisrétt, málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til stjórnarstarfa á aðalfundi félagsins
19.05.2020
Aðalfundur Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar/LSA 2020 Verður haldinn þriðjudaginn 26. maí nk. kl. 20.00 í fundarherbergi skautahallarinnar.
18.05.2020
Aðalfundur hokkídeildar verður haldinn í Skautahöllinni mánudaginn 25. maí kl. 20:00
Fundarefni; venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Stjórnin.
18.05.2020
Mánudaginn 25. maí kl.18:15
02.05.2020
Æfingar leik- og grunnskólabarna hefjast hjá Skautafélaginu 4. maí án takmarkanna. Áfram eru takmarkanir á þáttöku fullorðinna og því verða engir almenningstímar eða æfingar fyrir fullorðna nema innan þeirra takmarkanna sem eru í gildi. Sömu húsreglur og settar voru í upphafi samkomubannsins eru í gildi. Foreldrar geta komið með börn sína á æfingar en skulu takmarka komu viðveru sína í Skautahöllinni og halda tveggja metra nándarreglu. Þá eru allir foreldrar og iðkenndur hvattir til þess að halda uppteknum hætti í hreinlæti, handvþotti og notkun handspritts. Starfsmannarými verður áfram lokað fyrir umgengni annarra en starfsfólks hússins. Frekari leiðbeiningar verða sendar beint til iðkennda af þjálfurum.
20.03.2020
Þær æfingar sem fyrirhugaðar voru í næstu viku munu ekki ná fram að ganga eins og vonast var eftir. Hér að neðan er yfirlýsing frá ÍSÍ.
20.03.2020
Það verður opið fyrir almenning í Skautahöllinni laugardag og sunnudag kl. 13-16.
Sjoppan verður lokuð og engin vörusala og við mælumst til þess að fólk nýti sér rafrænar greiðslur í miðasölu.
16.03.2020
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga. Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis, og í samráði við ríkisstjórnina að setja á tímabundna takmörkun á samkomum. Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.
15.03.2020
Íslandsmótið hófst á mánudaginn með tveimur leikjum.
13.03.2020
Ekkert verður af alþjóða krullumótinu Icecup