Skerpingar á morgun!

Ég vil minna á að Ian skerpingasérfræðingur kemur á morgun að skerpa fyrir 3,4,5,M og U flokk. Þeir sem skráðu sig koma með skautana inn í höll í síðasta lagi um hádegi á morgun, annars getur verið að hann nái ekki að skerpa! Best að skilja skautana eftir undir bekkjum í klefa 3 og MUNA að merkja skautana vel!

Foreldrar!

Allir iðkendur fengu bréf heim í dag. Það er áríðandi að þið lesið bréfið! Ef eitthvað er óljóst hafið þá samband við Helgu í síma 6996740!

Námskeið um helgina!

Námskeið um nýja dómarakerfið

Komin er nákvæm tímasetning á fyrirlestrinum og námskeiðinu um nýja dómarakerfið! Fyrirlesturinn um nýja dómarakerfið fyrir foreldra, iðkendur og aðra áhugasama verður milli 11 og 12 laugardaginn 9. desember og strax á eftir milli 12 og 13 verður smá kennsla fyrir iðkendur þar sem farið verður yfir hvernig hægt sé að auka við stigafjölda í prógrömmum. Helga Margrét mun halda fyrirlesturinn og er hún tæknidómari hjá ÍSS. Daginn eftir verður námskeið fyrir tilvonandi dómara og þá sem áhuga hafa á því að læra á dómarakerfið, hvernig það er sett upp og hvernig það er notað til að dæma. Við leitum eftir áhugasömu fólki til að koma og kynna sér þetta, því til að geta haldið stórmót á Akureyri þurfum við góðan og traustan hóp af fólki til að aðstoða við uppsetningu og notkun dómarakerfisins. Þetta námskeið verður sunnudagsmorguninn 10. desember milli 9 og 11 og þar munu þær Mimmi Viitanen, Elísabet Eyjólfsdóttir og Sigrún Mogensen fara yfir og kenna fólki á notkun og uppsetningu. Milli 11 og 13 verður Jólamót SA haldið. Við munum prófa kerfið á því móti og dómaraefnin fá að æfa sig á kerfinu og kynnast því að dæma í keppni. VIð hvetjum alla sem áhuga hafa til að koma og nýta sér þetta tækifæri! Tímatafla er undir "lesa meira".

Litlahokkibúðin!!!!!

Sunnudaginn 10 des. Mun litla-hokki-búðin kíkja í heimsókn og vera með varning til sölu í skautahöllinni. Biggi í hokkibúðinni hefur lofað afar góðum prís á öllum vörum og er um að gera að nýta sér þetta tækifæri. Semsagt á sunnudaginn 10 des. Frá kl.10:00-16:00. ÁFRAM S.A.!!!!

Fundarboð !!!!!!

Foreldrar og iðkendur í M – 5 – 4  og U hóp

 Áríðandi fundur með Hönnu á fimmtudagskvöldið 7/12 kl: 19:30 í Skautahöllinni.

Stjórn Listhlaupadeildar

skautar til sölu

Risport listskautar RF3 Super til sölu með Professional freestyle blöðum Hvítir að lit (ekkert rispaðir) ATH: Ónotaðir Vinsamlegast hafið samband í síma 695-3330 eða á mail rakeljo@hotmail.com

6 leikmenn frá SA í U20 landsliðinu

U20 ára landslið Íslands heldur utan um næstu helgi til keppni í 2. deild heimsmeistaramóts Alþjóða Íshokkísambandsins. 

Kvk. SA - Björninn 10 - 2

SA stelpur lögðu Bjarnarstelpur 10 - 2     Áfram SA stelpur

SA landar 5. sigrinum í röð

Í gærkvöldið tókum við SA menn á móti Bjarnarmönnum hér í Skautahöllinni á Akureyri og var þetta síðasti leikur okkar fyrir jólafrí.

SA stelpur enn ósigraðar

Í gærkvöldi mættust SA og Björninn í kvennaflokki.