Karfan er tóm.
Áður ákveðin tímasetning á mfl. leiknum mun halda sér og leikurinn hefjast kl. 19:15 Áfram SA .......
Því miður verðum við að fresta Brynjumótinu vegna þess að ekki þykir ráðlegt að leggjast í ferðalög með keppendurna að sunnan. Við stefnum á að halda Brynjumótið eftir tvær vikur þ.e. 25. og 26. nóv ef allt gengur upp og verður það tilkynnt nánar síðar. Æfingar verða því samkvæmt tímatöflu eins og venjulega þessa helgi. Meistaraflokksleikurinn á milli SA og SR verður annað kvöld svo fremi að SRingar komist norður. Leikurinn er á dagskrá kl. 19:15 og ekki er ljóst í augnablikiniu hvort þeirri tímasetningu verður haldið eða hvort hann muni byrja eitthvað fyrr en við munum tilkynna það hér um leið og það verður ljóst. kveðja....Reynir Sig. 660-4888. reynir@sasport.is
Nú liggur fyrir dagskrá Brynjumótsins sem haldið verður um næsu helgi í Skautahöllinni hér á Akureyri. Skoða má dagskránna
Í gærkvöldi mættust kvennalið SA og Bjarnarins í Skautahöllinni á Akureyri og lauk leiknum með frekar áreynslulitlum sigri SA gegn vængbrotnu liði Bjarnarins - lokatölur 7 – 2. SA mætti með allt sitt sterkasta lið en Bjarnarstelpur voru aðeins með sjö útileikmenn auk þess sem lykilleikmenn vantaði hjá þeim, en það er skarð fyrir skyldi þegar t.a.m. vantar Öggu í liðið.
En SA liðið spilaði leikinn vel, stelpurnar létu pökkinn ganga, héldu stöðunum sínum og leystu verkefnið á viðeigandi hátt og spiluðu á þremur línum allan tímann.
Mörk og stoðsendingar
SA: Sarah Smiley 2/2, Sólveig Smáradóttir 1/2, Anna Sonja Ágústsdóttir 2/0, Jónína Guðbjartsdóttir 1/1, Hrund Thorlacius 0/2, Steinunn Sigurgeirsdóttir 1/0, Sigrún Sigmundsdóttir 0/1, Vigdís Aradóttir 0/1
Björninn: Hanna Heimisdóttir 2/0, Sigríður Finnbogadóttir 0/1