18.01.2016
Um helgina fór fram annað mótið af þremur sem telja til Íslandsmótsins í 4. flokki í Skautahöllinni á Akureyri. Lið SA sigraði í öllum sínum leikjum í mótinu og hafa unnið 7 af 8 leikjum í Íslandsmótinu.
17.01.2016
Hér er að finna dagskrána hjá listhlaupadeildinni dagana 18.-23. janúar
17.01.2016
Það er líka hægt að skoða myndbönd af mótinu á YouTube í hærri upplausn.
17.01.2016
Leikir laugardagsins og sunnudagsins voru sendir út bæði á SATV og YouTube og upptökur eru komnar á vimeo.
16.01.2016
Gimli-mótið 2016 hófst sl. mánudag.
16.01.2016
Áramótamótið 2015 fór fram miðvikudaginn 30. desember.
16.01.2016
Krullumaður ársins hefur verið valinn árlega frá 2004 og á síðari árum hefur einnig verið valin Krullukona ársins. Í kjöri voru allir sem tekið höfðu þátt í helstu aðalmótunum á vegum deildarinnar og krullunefndar ÍSÍ. Að þessu sinni var það stjórn félagsins sem kaus Krullufólk ársins
15.01.2016
Bein tilrauna útsending á YouTube ( http://www.youtube.com/user/hokkimyndbrot/live ), og þar ætti að vera hægt að horfa í símum og spjaldtölvum líka.
Það verður líf og fjör í Skautahöllinni um helgina en þá fer fram Íslandsmótið í 4. flokki en mótið er annað í röðinni af þremur sem telja til Íslandsmótsins. Leikið er á laugardag frá kl 17.20 og svo hefst seinni umferðin á sunnudagsmorgun kl 8.00 og mótið klárast svo með verðlaunaafhendingu og pizzuveislu um kl 12.00 á sunnudag. Hér má finna dagskrá mótsins og fyrirkomulag.
14.01.2016
Marta María stóð sig frábærlega í frjálsa prógramminu í dag. Hún fékk 54,68 stig og hækkaði það hana upp í silfur sætið á leikunum á nýju íslensku meti í stúlknaflokki A 86,49 stigum, hún bætti metið bæði í stutta og frjálsaprógramminu. Ásdís Arna Fen átti líka góðan dag og bætti hún perósnulegt met sitt í frjálsa og fékk hún fyrir það 44,55 stig. Samanlagt fékk Ásdís 69 stig. Hún hækkaði sig upp um 2 sæti frá því í gær og hafnaði hún í 10. sæti.
14.01.2016
Ásdís Arna Fen Bergsveinsdóttir og Marta María Jóhannsdóttir lögðu af stað ásamt skíðakrökkum frá Akureyri á mánudaginn á Internatinal Childrens Games sem fram fara Innsbruck í Austuríki. Þær stöllur kepptu í stutta prógraminu í gær þar sem Ásdís var í 12. Sæti með góðann árangur (24.45) nálægt sínu besta. Marta María átti frábæran dag og setti persónulegt met (31.81 stig) og endaði í 3. Sæti eftir daginn.