Bronsið í höfn, besti árangur Íslands

Íslendingar unnu til bronsverðlauna í A-riðli 2. deildar Heimsmeistaramótsins í íshokkí með sigri á Serbum í lokaleiknum í dag, 5-1. Andri Már Mikaelsson var valinn maður leiksins í íslenska liðinu. Ingvar Þór Jónsson lék sinn 70. landsleik.

Fimm lið frá SA á Barnamóti SR

Um helgina fer fram Barnamót SR í íshokkí þar sem eigast við krakkar í 5., 6. og 7. flokki frá Skautafélögunum þremur. SA er með fimm lið á mótinu. Helgarmót 3. flokks fellur niður þrátt fyrir færð.

Fyrsti sigurinn á Spánverjum - möguleiki á bronsinu

Íslendingar unnu sinn annan sigur í A-riðli 2. deildar Heimsmeistaramóts karla í íshokkí í morgun þegar þeir mættu Spánverjum. Orri Blöndal skoraði mark úr eigin varnarsvæði. Líkur á hreinum úrslitaleik um bronsið á morgun.

Íslandsmótið í krullu: Skytturnar í úrslitaleikinn

Deildarmeistarar Mammúta misstu af sæti í úrslitaleik Íslandsmótsins þegar þeir töpuðu fyrir Skyttunum í undanúrslitum í gær. Garpar og Skytturnar mætast í úrslitaleiknum. Mammútar mæta Ís-lendingum í leik um bronsið.

Úrslit og myndir frá innanfélagsmótinu

Um helgina fór fram næstsíðasta innanfélagsmótið í vetrarmótaröðinni í hokkí. Hér er umfjöllun byggð á upplýsingum sem Sarah Smiley sendi fréttaritara - og svo myndir frá Ása ljós.

Sigur gegn Áströlum í bráðabana

Íslenska karlalandsliðið í íshokkí sigraði Ástrala eftir framlengdan leik og bráðabana í vítakeppni í 2. deild A á Heimsmeistaramótinu í dag.

Íslandsmótið í krullu: Undanúrslitaleikur í kvöld

Í kvöld mætast Mammútar og Skytturnar í undanúrslitaleik Íslandsmótsins í krullu.

Ice Cup - síðasti skráningardagur er 22. apríl

Nú líður tíminn óvenju hratt, enda veðurblíða næstum upp á hvern dag. Afmælismót Ice Cup - 10. mótið - nálgast, en það fer fram dagana 2.-4. maí. Minnum á mátun Ice Cup afmælisbola í krullutímanum mánudagskvöldið 15. apríl.

Tap gegn Belgum

Íslendingar léku fyrsta leiks inn í A-riðli 2. deildar Heimsmeistaramótsins í íshokkí karla í morgun og máttu játa sig sigraða gegn Belgum, sem komu upp úr B-riðli í fyrra.

Sjö SA-menn með landsliðinu til Króatíu

Íslenska karlalandsliðið í íshokkí tekur þátt í A-riðli 2. deildar Heimsmeistaramótsins dagana 14.-20. apríl. Sex leikmenn frá SA fara með landsliðinu að þessu sinni.