Karfan er tóm.
Hæ hæ
Nú styttist í Vinamót LSA, svo nú er að ath. hvort allir eigi það sem til þarf sokkabuxur, hlífar og þess háttar.
Útsölu lýkur á fimmtudag 3.mars.
kveðja Rakel 662 5260 Stallatúni 4 íbúð 102
Leikurinn byrjar kl. 17,00 og slóðina á útsendinguna má finna hér; http://www.ustream.tv/channel/urslit-2010-2011-sa-vs-sr-1-leikur
það er líka textalýsing á ihi vefnum og mbl.is
Á morgun, sunnudaginn 27. febrúar, hefst úrslitakeppnin í meistaraflokki karla. Til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn eftirsótta þarf að vinna þrjá leiki og fyrsti leikurinn fer fram hér á Akureyri kl. 17:00 á morgun. Víkingar urðu deildarmeistarar á dögunum og tryggðu sér heimaleikjaréttinn í úrslitaeinvíginu en sá réttur getur vegið þungt fari keppnin alla leið í fimm leiki.
Í ár er keppt um þennan titil í 20. sinn, þ.e.a.s. síðan deild með þremur liðum eða fleiri hóf göngu sína veturinn 1991 – 1992. Á þessum árum hefur Skautafélag Reykjavíkur unnið 5 sinnum og Skautafélag Akureyrar 14 sinnum og því má segja að hefðin sé okkar megin. Keppnin hefur hins vegar jafnast mikið síðustu ár og ef litið er til síðustu tólf ára, þ.e. síðan SR vann sinn fyrsta titil árið 1999 þá hefur SR unnið 5 sinnum en SA 7.
Margt hefur breyst á þessum árum og má þar fyrst og fremst nefna aðstöðuna, sem nú er til fyrirmyndar hjá öllum félögum þó flestir vildu meiri ístíma. Geta leikmanna hefur einnig tekið stórstígum framförum á síðustu 20 árum og nú eru liðin farin að tefla fram full skipuðum 20 leikmanna liðum í meistaraflokki og hver staða skipuð íslenskum leikmönnum. Því má halda fram með gildum rökum að hokkíið hafi jafnvel verið betra í deildinni fyrir 10 árum en það er nú, en t.d. á því herrans ári 2001 voru á annan tug erlendra leikmanna í deildinni og fáir íslenskir leikmenn sem gegndu lykilhlutverkum hjá liðunum. Nú er hins vegar öldin önnur, mikið framboð er af frambærilegum heimamönnum og öll lið fullskipuð.
http://www.ustream.tv/channel/v%C3%ADkingar---j%C3%B6tnar-220211
Stadan eftir 1. lotu var 4 - 0 fyrir Vikinga. thegar 7min eru eftir af 2. lotu er stadan 5 - 1.
17min eftir af 3.hluta og stadan 9 - 2. Litid hefur verid um refsingar held tvaer a hvort lid. Vikingar skora stadan 10 - 2
Leiknum lauk med sigri Vikinga 11 - 2