Karfan er tóm.
ÍSS sendir keppendur á Isblomsten sem fram fer í Danmörku 28-30 janúar 2011
Keppendur ÍSS á Isblomsten 2011:
Agnes Dís Brynjarsdóttir SB
Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir SR
Hugrún Sara Maríusardóttir SR
Nadia Margrét Jamchi SR
Urður Ylfa Arnardóttir SA
Vala Rún B. Magnúsdóttir SR
Sjá nánar á heimasíður ÍSS http://skautasamband.is/
Valkyrjur unnu sannfærandi sigur á Skautafélagi Reykjavík ur í Laugadalnum í gærkvöldi, lokatölur 7 - 1. Fyrsta lotan fór 3 - 1 og mörk Valkyrja skoruðu Díana Björgvinsdóttir með 2 og Hrund Thorlacius með 1 en mark SR skoraði Karítas sem spilaði sem útispilara lánsleikmaður frá Birninum. Karitas er aðalmarkvörður Bjarnarins og greinilega liðtækur markaskorari.
2. lota fór 2 - 0 og mörkin skoruðu Arndís og Sarah Smiley og í 3. lotu komu svo síðustu tvö mörkin og þar var Arndís aftur á ferðinni og Hrund.
Jötnarnir unnu í gærkvöldi annan sigurinn á Birninum á tveimur dögum og lönduðu því heilum sex stigum um helgina og komust með því yfir Björninn á stigatöflunni. Jötnar eru sem stendur í 3. sæti með 13 stig en Björninn er í neðsta sæti með 11 stig.
Nokkuð jafnræði var með liðunum, Jötnar skoruðu fyrsta markið og Björninn jöfnuðu, síðan skorðu Jötnar tvö í röð í 3. lotu áður en gestjafarnir gerðu slíkt hið sama og jöfnuðu aftur. Annað mark lotunnar átti hinn ungi og efnilegi varnarmaður Ingþór Árnason, sem skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokki og auðvitað frá bláu línunni. Ingþór spilar líkt og Sigurður Reynisson einnig í 2. og 3. flokki og hafa þeir því spilað ansi marga leiki í vetur og það er að skila sér.
Á síðustu mínútum var allt í járnum og allt stefndi í framlengingu þegar Helgi LeCunt skoraði sigurmarkið skömmu fyrir leikslok og tryggði Jötnum öll stigin sem í boði voru um helgina. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Jötnunum sem áttu óvenju erfiða viku því þeir þurftu að spila þrjá leiki í Reykjavík á 5 dögum og geri aðrir betur. Af þeim 9 stigum sem í boði voru þessa 5 daga náðu þeir sér í 7. Jötnar hafa nú lagt öll liðin í deildinni að velli.
Reynir Sigurðsson var á leiknum og var með beina textalýsingu sem sjá má hér að neðan.
Leikurinn er hafinn og fyrsta refsing bjarnarins kom á 20 sek hooking. björninn er fullskipaður . 16,52 eftir af 1. lotu. 14.04 eftir og tíðindalítið . helgi Jötunn fær 2 fyrir holding, 7,32 eftir. björninn fær 2 fyrir holding, 4 á 4 í 50sek. Josh fékk 10 min miscon. og svo sturtuna. björninn var 5 á 3 en jón stal pekkinum og skoraði, 6,04 eftir. jötnar eru búnir að eiga ótrúlegt tæplega 5 min penaltykill spilað 5 á 5 og lotan búin. staðan 0 - 1.
2.lota er hafin. björn jötun fær 2 fyrir röffing. stebbi jötun fær 2 fyrir tripp. jötnar eru 3 í 1,15. ingó jötun fær 2 fyir interf. Spilað 5 á 5, jötnar sluppu með skrekkinn, 13,56 eftir af 2. lotu. 7,19 eftir af lotunni og leikurinn nokkuð jafn á báða bóga. björninn fær 2 fyrir röffing. 6,06 eftir. 2,57. eftir. 0,43 eftir. 2. leikhluti búinn og leikurinn hefur verið nokkuð í járnum og góðar sóknir á báða bóga en staðan er óbreytt 0 - 1.
3.leikhluti er hafinn. stebbi fær 2 fyrir hooking, 16,35 eftir. björninn skoraði í powerplay 1 - 1. 15,04 eftir. Ingþór skoraði fyrir jötna, þrumuskot frá bláu 1 - 2 14,10 eftir . Jón var að skora fyrir jötna 1 - 3 12,00 eftir