Mögulega streymi á leik Víkinga í Lettlandi

Leikur Víkinga gegn Kurbads Riga verður sýndur í Lettneska sjónvarpinu svo ekki er alveg öruggt hvort hægt verði að sjá hann en hér er streymið. Leikurinn hefst kl. 16.30.

Engin krulla á mánudag

Mánudaginn 22. október verður frí í krullunni.

SA Víkingar mættir til Riga og hefja leik í 3. umferð Evrópukeppninnar á morgun

SA Víkingar ferðuðust til Riga í Lettlandi í gær og hefja leik í 3. umferð Evrópukeppninnar á morgun þegar liðið mætir heimaliðinu Kurbads Riga. Leikurinn hefst kl. 16.30 á íslenskum tíma og verður eflaust sýndur á netmiðlum en slóðinn á leikinn kemur á heimasíðuna á morgun. Liðið mætir svo HC Donbass frá Úkraníu á laugardag kl. 11.00 og Txuri-Urdin San Sebastian á sunnudag kl. 11.00.

Bikarmót ÍSS fór fram um nýliðna helgi

Bikarmót ÍSS fór fram í laugardalnum um nýliðna helgi þar sem LSA eignaðist 3 bikarmeistara, auk þess að koma heim með eitt silfur og eitt brons.

Haustmót Krulludeildar 2018

Þriðja umferð verður leikin í kvöld.

Greifamótið í íshokkí á Akureyri um helgina (dagskrá)

Barnamót Greifans í íshokkí verður haldið hjá okkur í Skautahöllinni um helgina. Um 160 börn eru skráð til leiks og verður leikið á laugardag og sunnudag en dagskrá mótsins má sjá hér. Leikið er í 4 flokkum, 5. 6. og 7. flokki ásamt krílaflokki. Liðsskipan SA liðanna má finna hér. Við hvetjum alla sem hafa gaman af íshokkí til að mæta í stúkuna og sjá öll glæsilegu börninn okkar að leik.

SA Víkingar með sigur í fyrsta leik sínum í Hertz-deildinni

SA Víkingar unnu góðan 6-1 sigur á SR í fyrsta leik Víkinga í Hertz-deildinni á tímabilinu. SA Víkingar byrja vertíðina vel og eru ósigraði í síðustu 6 leikjum í öllum keppnu. SR-liðið hefur tekið miklum breytingum frá síðustu leiktíð og var sigurinn kannski full stór miðað við spilamennsku þeirra. SR eru enn án 4-5 erlendra leikmanna og landsliðmanna sem eiga eftir að bætast við hópinn svo þeir verða án efa í toppbaráttunni í vetur eftir nokkur mögur tímabil.

Haustmót Krulludeildar 2018

2. leikdagur í kvöld

SA Víkingar taka á móti SR í Hertz-deildinni á laugardag kl 17.30!

SA Víkingar taka á móti Skautafélagi Reykjavíkur í opnunarleik tímabilsins í Herz-deildinni laugardaginn 6. október á heimavelli í Skautahöllinni á Akureyri. Leikurinn hefst kl. 17.30 og miðaverð er 1000 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. SA Víkingar eru sjóðheitir um þessar mundir eftir frábæra framgöngu í lýsisbikarnum og svo í Evrópukeppninni. SR koma væntanlega einnig kokhraustir til leiks eftir sterkann sigur á Birninum í fyrsta heimaleik tímabilsins og því má búast við hörkuleik tveggja góðra liða. Ekki missa af þessu!

SA Víkingar unnu sig áfram í 3. umferð Evrópukeppni félagsliða – hvað svo?

SA Víkingar gerðu sér lítið fyrir og unnu A-riðil Evrópukeppni félagsliða á sunnudag með 2-0 sigri á HC Bat Yam frá Ísrael í síðasta leik liðsins í riðlinum. SA Víkingar tryggðu sé þar með farseðil beint í 3. umferð keppninnar sem fram fer í Riga í Lettlandi daganna 18.-21. október. SA Víkingar unnu alla 3 leikina í fyrstu umferð en sleppa við 2. umferðina og fara beinustu leið í 3. umferð þar sem mótherjarnir verða Kurbads Riga frá Lettlandi, HC Donbass (Úkraníu) and Txuri-Urdin San Sebastian (Spánn).