SR - SA 2.fl. Double Header um helgina

2.fl. SA drengja fóru í herbúðir SRinga þessa helgi og spiluðu 2 leiki, á laugard. kl.19,00 og sunnud. kl.10,00. Fyrrileikinn unnu sunnanmenn 4-3 en þann seinni SA 2-4.

2. Flokkur

Mæting hjá 2 flokki klukkan 10 í fyrramálið.Munið eftir greiðslu í rútuna og hotelið. Denni.

Upplýsingar um ferð kvennalandsliðsins á HM í Rúmeníu

Hér má sjá upplýsingar af vef ÍHÍ um ferð kvennalandsliðsins sem halda mun utan í næsta mánuði til Rúmeníu til keppni á Heimsmeistaramótinu. Ferðaáætlun, fararstjórn, liðsmenn.

Hokkíæfingar 3. til 7.fl. falla niður um helgina 24.og 25. feb.

Vegna Íslandsmóts barna og unglinga í Listhlaupi og útselds hóptíma í krullu þá falla niður æfingar 3. til 7.flokks þessa helgi.

Föstudagur

Næsta föstudag verður rennsli á prógrömmum hjá ABCDEFG hópum. Allir mæta í kjólum og með vel greitt hárið eins og í keppni. Munið að hita ykkur upp af-ís eins og þið ætlið að gera á keppnisdaginn. Kv. Helga Margrét

Mfl. Björninn - SA síðasta laugardag fór 7 - 5

SA menn fóru til keppni í Egilshöll á laugardaginn síðastliðinn og þar urðu úrslit þau að Björninn vann með 7 mörkum gegn 5 mörkum SA manna. 

Kemur næst, Áfram SA...............

Ath. Breytingar á æfingatöflu yngstu flokka

Frá og með morgundeginum, þriðjudeginum 20. febrúar, verða breytingar á flokkaskipan og tímtöflu byrjenda, 7., 6. og 5. flokks. Hér er breytta flokkaskipanin og nýja tímataflan fyrir þá sem ekki hafa hana undir höndum, en allir sem mættu á æfingar síðastliðinn fimmtudag fengu blað yfir þessar breytingar.

Öskudagsdiskó

Á Öskudaginn (miðvikudaginn 21. febrúar) verður diskó fyrir 1. og 2. hóp milli 17 og 18! Foreldrar og systkini eru líka velkomin og þeir sem ekki eiga skauta geta fengið lánaða skauta í Skautahöllinni. Allir mega koma með smá nammi með sér og að sjálfsögðu mega allir mæta í búningum!

Æfingar

Hanna er enn veik. Helga og aðrir þjálfarar sjá um þjálfun næstu daga. Ekki morgun æfing á þriðjudag. Helga er í verknámi og veikindi hafa hrjáð aðra þjálfara því er mikilvægt að fylgist með heimasíðunni varðandi æfingar næstu daga. Gætu breyst með stuttum fyrirvara. :-)

Sunnudagsæfingar

Hanna þjálfari er veik og því eru smá breytingar á æfingum. Á morgun sunnudaginn 18. febrúar verða æfingar sem hér segir.  F og G kl:9:00-10:00 æfing á prógrömmum. 3 hópur er síðan á ís klukkan 10:00-11:00 og afís frá 11:00-12:00. Seinni partinn er F og G á æfingu milli 17:00 -18:00. C, D og E frá 18:00-19:00 og A og B frá 19:00-20:00.