Heimsókn frá Kanada

Í kvöld, mánudagskvöld kl 19.30 fer fram vináttuleikur í skautahöllinni þar sem SA víkingar taka á móti liði áhugamanna frá Toronto í Kanada. Þessi lið mættust síðast fyrir 2 árum þegar lið Toronto hafði betur í vítakeppni. Lið Toronto er skipað eldri leikmönnum en tóku þátt í heldri manna mótinu Icelandair Cup í Egilshöll um liðna helgi þar sem mótsgjöldum var safnað til styrktar Rauðakross Íslands. Þess að auki hafa liðsmenn Toronto komið að því að safna styrkjum erlendis fyrir íslenskt íshokkí sem hugsanlega mun svo renna til SA ef úr rætist.

Á morgun mætir svo Toronto liðið Jötnum á sama stað kl 19.15.

SKAUTA BUXUR

Er að fá skauta buxur um næstu helgi, þessar svörtu flís sem koma undir skautann. Ef þú vilt fá buxur með þessari sendingu þá endilega sendu á mig mail / SMS í síðasta lagi miðvikudaginn 27. okt..

Allý / allyha@simnet.is - 8955804

Engin krulla mánudaginn 25. okt.

Vakin er athygli á að engin krulla er mánudagskvöldið 25. okt. 

5. 6. og 7. flokkur lagður á stað heim.

Barnamótinu í Laugardal er lokið og SA-hópurinn lagði af stað frá Reykjavík rétt fyrir kl. 14,00 og áætlaður komutími að skautahöllinni á Akureyri er um það bil kl. 19,30. Rútan fór frá Varmahlíð kl. 18.10

2.flokkur SA - Björninn 2 - 3

Björninn vann SA í 2.fl. í gærkvöldi í jöfnum og spennandi leik með gullmarki í framlengingu með 3 mörkum gegn 2.  (1-1) (1-1) (0-0) (0-1) Mörk og stoð SA, Gunnar Darri Sigurðsson 2/0 og Ingólfur Elíasson 0/1 refsimínútur 10.  Mörk og stoð Björninn, Brynjar Bergmann 2/0, Steindór Ingason 1/0 og Zach Óskarsson 0/1, refsimínútur 22.

ÍSS hefur valið landslið til þátttöku erlendis í haust

Þeir skautarar sem ÍSS hefur valið sem Landslið ÍSS til keppni erlendis á haustmánuðum eru eftirtaldir skautarar: (Í stafrófsröð) sjá www.skautasamband.is

Agnes Dís Brynjarsdóttir             Skautafélaginu Birninum
Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir    Skautafélagi Reykjavíkur
Júlía Grétarsdóttir                      Skautafélagi Reykjavíkur
Nadia Margrét Jamchi                 Skautafélagi Reykjavíkur
Vala Rún B. Magnúsdóttir           Skautafélagi Reykjavíkur
Þuríður Björg Björgvinsdóttir        Skautafélagi Reykjavíkur

1. varamaður:
Urður Ylfa Arnardóttir                 Skautafélagi Akureyrar

 

KERTI fjáröflun

Hæ, nú getum við fengið úti kerti til að selja til fjáröflunar v / keppnisferða eða æfingabúða. Þeir sem hafa áhuga á að vera með eru beðnir að láta mig vita í síðasta lagi laugardaginn 23. október. Það eru 2 kerti í pakka eins og við vorum með í fyrra og 14 x 2 í kassa. Allt kostar peninga og því fyrr því betra að byrja að safna fyrir næstu æfingabúðir.

Allý / allyha@simnet.is - 

SR - Víkingar 5 - 2 í Laugardal í gærkvöldi.

Víkingar lágu fyrir SRingum í gærkvöldi en þetta var fyrsta viðureign liðanna í vetur. Sjá má frétt á vef ÍHÍ um leikinn.

ITA ávísanir

Þeir foreldrar sem eru með ávísanir frá Akureyrarbæ og ætla að nýta sér þær uppí æfingagjöldin þurfa að koma þeim í síðasta lagi til gjaldkera föstudaginn 22. október n.k.

Sendist á:

Samvirkni

b/t Hólmfríður

Hafnarstræti 97. 5.hæð

600 Akureyri 

Akureyrarmótið: Fífurnar sigruðu

Fífurnar unnu mótið með fullu húsi, lögðu Riddara í lokaumferðinni.