Gimli Cup hefst 1. nóvember

Skráningarfrestur rennur út 23. október.

Hokkíveisla í Skautahöllinni um helgina.

Klukkan 22,00 í kvöld þann 15. hefst partíið með leik í meistaraflokki karla á milli SA-Jötna og SR. Síðasta leik þessara liða lauk með sigri Jötna svo víst er að SRingar hyggjast hefna harma sinna og hart verður barist. Á laugardeginum kl. 17,00 er svo leikur í meistaraflokki kvenna, og þar eigast við SA-Ynjur og Björninn. Ynjur lutu í Ís fyrir Bjarnarstúlkum, eins og sagt er, síðast þegar liðin mættust en hyggja hærra nú svo lofa má góðri skemmtan. Strax að loknum kvennaleiknum eigast við í seinni leik helgarinnar Jötnar og SR. Sem sagt hörku skemmtun í Höllinni um helgina og nú mega engir láta sig vanta í stuðningsliðin eða spara röddina í hvatningar hrópin.  ÁFRAM SA ...........

Akureyrarmótið: Riddarar héldu lífi í titilvoninni

Riddarar sigruðu Mammúta í kvöld. Næstum hreinn úrslitaleikur verður á milli Riddara og Fífanna í lokaumferðinni.

Æfingartími breytist tímabundið hjá A og C hópum

Æfingar C-hópa samkvæmt tímatöflu nema næstu tvo laugardaga 16 og 23 okt mætir C2 kl:10.40 og C1 kl: 11.00. Næsta þrijudag 19 okt er morgunæfing hjá C1 og C2 kl: 06.15-07.30.

Breytingarnar hjá A hóp er:

Fimmtudagana 14 og 21 okt ís kl: 15.10-16.00, afís 16:10-17.30

Laugardagana 16 og 23 okt 10.00-11.05 afís (varanleg breyting í tímatöflu)

Sunnudagana 17 og 24 okt 17.15-18.55 ís

Þriðjudaga 16.00-17.30 afís, Laugargata (varanleg breyting)

 

Akureyrarmótið: Frestaður leikur

Í kvöld verður leikinn frestaður leikur úr 1. umferð  Akureyrarmótsins. Riddarar og Mammútar eigast við.

Valkyrjur unnu með 7 mörkum gegn 6 Ynjanna.

Mörk og stoð Valkyrjur, Hrund Thorlacíus 2/2, Sarah Smiley 2/0, Guðrún Arngímsd. 2/0, Linda Brá Sveinsd. 1/, Guðrún Blöndal 0/1
Refsimínútur, 2
Mörk og stoð Ynjur, Diljá Sif Björgvinsd. 1/1, Védís Áslaug Valdemarsd. 1/1, Sylvía Rán Björgvinsd. 1/0, Kristín Björg Jónsdóttir 1/0, Díana Mjöll Björgvinsd. 1/0, Katrín Hrund Ryan1/0
Refsimínútur, 0

Ynjur og Valkyrjur mætast í kvöld

Í kvöld mætast heimaliðin Ynjur og Valkyrjur í Skautahöllinni kl. 19:30.   Fyrir þá sem ekki vita þá eru Ynjur skipað yngri leikmönnum og SA og Valkyrjur eldri leikmönnum.  Leikurinn verður væntanlega skemmtileg innanfélagsviðureign sem eykur leikreynslu og styrkir liðin í komandi átökum við sunnanliðin.

Akureyrarmótið: Tvö lið eiga möguleika

Fífurnar standa best að vígi eftir næstsíðustu umferðina en Riddarar og Víkingar geta náð þeim að stigum. Víkinga vantar nokkra sentímetra upp á að eiga möguleika á fyrsta sætinu. 

Akureyrarmót: Þátttökugjald

Greiða þarf þátttökugjaldið í síðasta lagi fyrir lokaumferðina. Næsta mót, Gimli Cup, hefst 1. nóvember.

Úrslit helgarinnar

Víkingar og Ynjur héldu til Egilshallar á laugardaginn og áttu þar misjöfnu gengi að fagna.  Víkingar byrjuðu á að leggja Björninn með 5 mörkum gegn 3.  Sá leikur var nokkuð skemmtilegur, jafn framan af og hraður þó ekki hafi hann verið mjög áferðar fallegur.  Andrarnir Már og Freyr komu Víkingum fljótlega í 2 - 0 en Matthías Sigurðsson minkaði muninn fyrir lok lotunnar.  Bjarnarmenn bættu svo við tveimur mörkum til viðbótar í 2. lotu og höfðu þar með breytt stöðu sinni frá því að vera tveimur mörkum undir yfir í eins marks forystu, 3 - 2.