Úrslit á Íslandsmeistaramóti 2006

Úrslit urðu sem hér segir á Íslandsmeistaramóti 2006:

Novice
1. sæti Sigrún Lind Sigurðardóttir SA
2. sæti Dana Rut Gunnarsdóttir SR
3. sæti Heiða Ósk Gunnarsdóttir SR

Junior
1. sæti Íris Kara Heiðarsdóttir SR
2. sæti Ásdís Rós Clark SR
3. sæti Hildur Ómarsdóttir SR

Íslandsmeistaramót ÍSS

Laugardaginn 21. janúar verður Íslandsmeistaramót í listhlaupi á skautum í Skautahöllinni á Akureyri.

Mótið hefst kl 10:00 og lýkur um kl 17:30.

Skráðir Keppendur fyrir Íslandsmeistaramót 2006

 Junior:

Ásdís Rós Clark. SR
Hildur Ómarsdóttir. SR
Íris Kara Heiðarsdóttir. SR
Guðbjörg Guttormsdóttir. SR
Audrey Freyja Clarke. SA

 Novice:

Dana Rut Gunnarsdóttir. SR
Edda Lúthersdóttir. SR
Heiða Ósk Gunnarsdóttir. SR
Ingibjörg Bragadóttir. SA
Sigrún Björgvinsdóttir. Björninn

Sigrún Lind Sigurðardóttir. SA

Guðny Ósk Hilmarsdóttir. SA



 

 

 

Aukatímar á sunnudag!

Á sunnudaginn 22. janúar verða venjulegar æfingar samkvæmt stundatöflu, en milli 9 og 11 verða aukatímar fyrir þá iðkendur sem þurfa smá lagfæringar á prógrömmunum sínum.  Það er ekki skyldumæting í þessa tíma en gott ef þið gætuð látið Helgu (6996740) vita með sms-i ef þið viljið nýta ykkur þessa tíma.

Þeir iðkendur sem mega mæta í þessa tíma eru:


Sigríður Guðjónsdóttir
Kristín Guðjónsdóttir
Karen Björk Gunnarsdóttir
Aldís Rúna Þórisdóttir
Stefanía Ósk Ásmundsdóttir
Eyrún Gísladóttir
Ásta Heiðrún Jónsdóttir
Heiða Björg Guðjónsdóttir
Berglind Dóra Sigurðardóttir
Sara Dögg Eiðsdóttir
Margrét Ýr Prebensdóttir

SA-Narfi sem átti að vera í kvöld

Leiknum er frestað til næsta þriðjudags

Breyttir æfingatímar!

Allar æfingar falla niður föstudaginn 20. janúar vegna Íslandsmeistaramóts sem haldið verður í Skautahöllinni um helgina.  Einnig falla allar æfingar niður á laugardaginn nema æfingin milli 8 og 9 þar sem 1. flokkur mætir!  Við viljum hvetja alla til þess að koma og horfa á okkar fremstu skautara keppa, en keppnin hefst kl. 9:45 á laugardagsmorgun!

Mótaskrá fyrir Landsbankamótið um helgina

Hér er komin mótaskráin fyrir Landsbankamót helgarinnar í Egilshöll

Mót 5., 6. og 7. flokks í Egilshöll í Rvk. 20.-22. janúar 2006

Vegna ferðar til Rvk. næstu helgi verðum við í Skautahöllinni (fundarherbergi) miðvikudaginn 18. janúar frá kl. 20:00-21:00. og tökum á móti greiðslu sem er kr. 9.500,. Þeir sem eiga inneign í sjóð geta látið það ganga upp í greiðslu. Ath. ekki er hægt að greiða með korti.  Einnig munum við afhenda lista yfir það sem þarf að hafa með.

Allar nánari upplýsingar veitum við á morgun miðvikudag.        Foreldrafélagið

5. - 7.fl. Muna flöskusöfnunina í dag kl 17:45 inni í Höll

5. - 7.fl. Muna flöskusöfnunina í dag kl 17:45 inni í Höll

Denni kveður

Núna eftir áramótin lét  Sveinn Björnsson, betur þekktur sem Denni, af störfum í skautahöllinni en hann hefur starfað hér allt frá því að húsið var tekið í notkun og reyndar vann hann einnig við byggingu  þess hjá SJS verktökum á sínum tíma.

 Denna þarf ekki að kynna fyrir skautaiðkendum því að hann hefur spilað íshokký mun lengur en elstu menn muna og verið þjálfari yngri flokka og í kvennahokkýi.

 Denni vann fyrst fyrir félagið sem svellagerðarmaður á meðan útisvellið var og þurfti þá að glýma við veðurguðina sem oft voru erfiðir andstæðingar og sendu honum stundum sunnanátt og hlýviðri þegar spáð hafði verið frosti og stillu.

 Nú þegar hann hefur ákveðið að söðla um og gerast einn af hetjum hafsins sendir Skautafélag Akureyrar  Denna bestu kveðjur og þakklæti fyrir óeigingjart starf í þágu félagsins og óskar honum allra heilla á nýjum starfsvettvangi.

Björninn - SA 2:6

Í gær laugardag, kl. 16,00 fór fram viðureign í meistaraflokki karla Björninn - SA og úrslit urðu þau að SA vann 2 gegn 6