Leiknum lauk með sigri Víkinga 6 - 1
Víkingar náðu þriggja stiga forskoti á toppi deildarinnar með góðum 6 - 1 sigri á SR hér í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld. Fyrir þennan leik var ljóst að þessi tvö lið munu mætast í úrslitum í byrjun mars og því ætluðu bæði lið að gefa tóninn fyrir það sem koma skal. Einhver taugatitringur var í mönnum í upphafi leiks og leikurinn fór varla almennilega af stað fyrr enn í 2. lotu. 1. lota var markalaus en 2. lota byrjaði af miklum krafti.
Í byrjunar uppkastinu barst pökkurinn til Andra Más sem sló pekkinum aftur til Ingvars í vörninni sem sendi fasta stungu á Rúnar Rúnarsson á fjær bláu sem stakk sér eins og elding upp að marki og lék Ævar grátt í markinu. Þarna voru aðeins liðnar 11 sekúndur af lotunni en á 28. mínútu jafnaði Tómas Tjörvi með aðstoð Þormóðssona. Aðeins þremur mínútum síðar kom sigurmarkið hjá Víkingum og óhætt að segja að það hafi verið „einstaklega glæsilegt“, dularfullur slöngvu floppari utan af miðjum velli sem rétt slapp við að lenda í loftljósunum áður en hann skoppaði fyrir framan markið og inn í netið á meðan Ævar var að borða nestið sitt, algerlega óviðbúinn þessari himnasendingu. Staðan 2 – 1 og þannig lauk 2. lotu.