Titilvörnin hefst um helgina
Um helga munu Bjarnarmenn koma í heimsókn og spila gegn Víkingunum hér í Skautahöllinni á laugardaginn kl. 17:30. Þessi lið mættust í æsispennandi úrslitakeppni síðasta vor þar sem við bárum sigur úr býtum í 5. leik úrslitanna. Liðin mættust svo aftur í Asetamótinu fyrr þessum mánuði og þar urðum við að láta í minni pokann gegn þeim í tveimur viðureignum.
Það er hins vegar ekki hægt að ganga út frá einhverju vísu í þessu því liðin öll virðast jöfn a.m.k. ef reynt er að lesa eitthvað úr þessum fyrstu leikjum tímabilsins. SR lagði Björninn nokkuð auðveldlega í æfingaleik á dögunum og svo lögðu Jötnarnir SR-inga um síðustu helgi.