20.10.2013
SA sigraði lið SR nokkuð auðveldlega á Íslandsmótinu í íshokkí kvenna í Laugardalnum í gærkvöldi. Nýr markvörður, Elise Marie Väljaots, steig í markið hjá SA. Silvía Rán Björgvinsdóttir skoraði fjögur mörk og átti þrjár stoðsendingar. Tvær úr liði SA með sitt fyrsta meistaraflokksmark.
20.10.2013
Víkingar áttu ekki í miklum vandræðum með SR í viðureign liðanna í Laugardalnum í gær. Úrslitin: SR - Víkingar 0-5 (0-2, 0-1, 0-2).
18.10.2013
Mánudaginn 21. október og miðvikudaginn 23. október verða eftirfarandi breytingar á æfingatímum:
18.10.2013
Hið margfræga og sögulega Brynjumót í íshokkí verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri um helgina. Fyrstu leikir hefjast kl. 8.00 á laugardagsmorgni.
Allar æfingar í íshokkí og listhlaupi falla því niður fyrir hádegi á laugardag og sunnudag.
Enginn almenningstími verður á laugardag og aðeins opið kl. 14-16 á sunnudag.
17.10.2013
Vegna hokkímóts í 5., 6. og 7. flokki verða breytingar á almenningstíma og æfingatímum á laugardag og sunnudag.
17.10.2013
Nú þegar jólin nálgast þá langar mig að ath.
16.10.2013
Það tók Jóhann Má Leifsson aðeins 21 sekúndu að skora í fyrsta OG þriðja leikhluta fyrir Jötna gegn Húnum í kvöld. Bráðfjörugum leik lauk með sigrí Jötna, 6-3.
15.10.2013
Þriðja umferð Akureyrarmótsins í krullu hófst í gær með leik Mammúta og Ice Hunt, en leik Garpa og Freyja var frestað.
15.10.2013
Annað kvöld, miðvikudagskvöldið 16. október, verður engin krulluæfing þar sem við skiptum á laugardagstímanum við mfl. karla í hokkí. Í staðinn ætlum við að hittast í Keilunni, spjalla og taka leik... eða eitthvað.