Aldís Kara búin að tryggja sig á Heimsmeistaramót unglinga

Aldís Kara Bergsdóttir hefur brotið blað í skautasögunni og er fyrst íslenskra einstaklingsskautara til að tryggja sig inná Heimsmeistaramót unglinga í listhlaupi. Þetta gerði hún á Norðurlandamótinu sem kláraðist í gær þar sem hún náði lágmörkunum í tæknistigum en þetta var síðasta tækifærið hennar til þess að ná lágmörkunum. Lágmörkin eru 38 stig en hún fór vel yfir þau og fékk 43.34 stig. Áður hafði hún náð lágmörkunum í stutta prógraminu tvívegis en ekki er nauðsynlegt að ná báðum lágmörkunum á einu og sama mótinu. Aldís Kara bætti einnig stigamet Íslendings í Junior keppni á Norðurlandamóti en hún fékk samanlagt 115.39 stig sem og er bæting uppá 11.87 stig en það met átti hún einnig sjálf. Niðurstaðan skilaði henni 8. sæti á Norðurlandamótinu sem er einnig besta árangur Íslendinga í Junior á Norðurlandamótinu. Það fer því allt á fullt í undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið hjá Aldísi Köru en mótið fer fram í Tallinn í Eistlandi daganna 2. - 8. mars.

SA-stúlkur Íslandsmeistarar

Kvennalið SA varð í kvöld Íslandsmeistarar eftir öruggan sigur í öðrum leik úrslitakeppninnar sem fram fór í Egilshöll. SA hafði yfirhöndina frá upphafi og vann öruggan 1:7 sigur. Sarah Smiley átti mjög góðan leik og skoraði þrjú marka SA en í heildina spilaði liðið vel, liðsheildin var góð og sigurinn var verðskuldaður.

Fjórar stúlkur úr SA á Norðurlandamótinu sem hófst í dag

slenska landsliðið í listskautum er nú statt í Stavanger í Noregi þar sem það tekur þátt í Norðurlandamótinu. Mótið hófst í morgun og eru þær Freydís Jóna Bergsveindóttir og Júlía Rós Viðarsdóttir báðar búnar að skauta stutta prógramið sitt í Advanced Novice flokki sem hófst fyrr í dag og stóðu sig báðar vel. Aldís Kara Bergsdóttir og Marta María Jóhannsdóttir skauta stutta prógramið sitt í Junior síðar í kvöld. Freydís og Júlía skauta svo frjálsa prógramið á morgun en Aldís og Marta á laugardag í junior flokki. Hér á heimsíðu mótsins er hægt að fylgjast með stöðunni í mótinu og hér er hægt að fylgjast með beinni útsendingu. Við sendum hlýja strauma til Stavanger og óskum stúlkunum okkar góðs gengis.

Mikilvægur sigur í höfn

Kvennalið SA vann mikilvægan 6:2 sigur á liði Reykjavíkur í fyrsta leik í úrslitarimmunni í kvöld. Þær voru þó langt frá því að spila sinn besta leik, en sigurinn engu að síður staðreynd og geta þær því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Egilshöll á fimmtudagskvöldið.

Úrslitakeppnin í Hertz-deild kvenna hefst annað kvöld

Úrslitakeppnin í Hertz-deild kvenna hefst annað kvöld, þriðjudaginn 4. febrúar þegar SA stúlkur mæta liði Reykjavíkur. Fyrsti leikur fer fram í Skautahöllinni á Akureyri og hefst leikurinn kl. 19.30. SA eru deildarmeistarar og unnu 8 af 10 viðureignum liðanna í vetur en leikirnir hafa verið jafnir og spennandi svo búast má við hörkuviðureignum. Liðið sem fyrr vinnur 2 leiki verður Íslandsmeistari en annar leikurinn verður spilaður í Reykjavík á fimmtudag og sá þriðji ef til kemur á Akureyri á sunnudag. Frítt er inn á leikinn - fyllum stúkuna og hvetjum okkar lið til sigurs!

SA Víkingar með sterkan heimasigur gegn SR

SA Víkingar unnu í kvöld 6-1 sigur á SR í Hertz-deild karla. Leikurinn var frábær skemmtun og nóg af tilþrifum. SA Víkingar náðu þar með 9 stiga forskoti í Hertz-deilinni á Björninn/Fjölnir en gerða að sama skapi út um vonir SR um að komast í úrslitakeppnina.