Foreldrar A keppenda fædd 1995-2000

Foreldrar A keppenda fædd árin 1995-2000 eru boðuð á fund eftir grunnprófsfundinn á mánudagskvöld. Finnlandsverkefnið svo kallaða verður kynnt og til umræðu.

Kvennamóti í Skautahöllinni á Akureyri

Nú fer fram í Skauthöllinni á Akureyri kvennamót í íshokkí þar sem um 50 konur frá SA, SR og Birninum á öllum aldri keppa í þremur liðum.  Liðin þrjú sem sérstaklega voru sett saman fyrir þetta mót heita Svörtu snákarnir, Rauðu Tígranir og Hvítu hákarlarnir.  Hvert lið er skipað þremur línum, hver í sínum styrkleikaflokki, og þannig keppa saman línur af sama styrkleikaflokki allt mótið.  Með þessu móti næst að halda keppninni jafnri þrátt fyrir ólík getustig leikmanna.

Tölvupóstfang forráðamanna iðkenda

Við reynum að hafa tölvupóstfanglista í lagi í deildinni til að geta komið skilaboðum til foreldra/forráðamanna iðkenda. Ef þið fáið ekki fjöldapóst frá okkur en viljið fá hann endilega hafið samband við hildajana@gmail.com Eftirfarandi netföng komast ekki til skila og gætu verið vitlaust skrifuð hjá okkur ef einhver þekkir þau og sér villuna, endilega hafið samband líka:

Gel legghíf týnd

Gugga týndi annari gel legghlífinni sinni í skautahöllinni, ef einhver hefur fundið hana þá endilega hafið samband og skilið henni.

Gugga / Inga - 8692406

LOKSINS SKAUTATÖSKUR

Loksins loksins  skautatöskurnar eru komnar. Þið getið skoðað litina á Transpack.net,  hægra megin á síðuna á SKATE og svo vinsta megin á Ice og þá skoðað stækkaða mynd af töskunum með því að setja örina á litlu myndirnar. Töskurnar henta líka vel fyrir skíðaklossana...að ca nr. 36..

Pantanir á allyha@simnet.is    Þær verða svo sendar til ykkar í póstkröfu og því þarf að koma fram  nafn, heimili og kennitala.

Allý  allyha@simnet.is / 8955804

Minimót sunnudaginn 21 mars

Allar æfingar hjá 3 flokk, 4 flokk og 5 flokk ásamt markmannsæfingum falla niður laugardagin 20 mars.
Það verður miní-mót fyrir 5 fl, 6 fl og 7 flokk sunnudaginn 21 mars

PAPPÍRS PENINGUR

Pappírs pening þarf ég að fá fyrir 20. mars endilega gerið skil fyrir þann tíma.

kv. Allý

Vinamót - úrslit sunnudagur

Mótið gekk í alla staði vel og þökkum við vinum okkar í SR og Birninum fyrir heimsóknina og hlökkum til að sjá þau hress og kát að ári. Lesa má úrslitin í

Akureyri vann Bæjarkeppni karla

Í gær áttust við Akureyri og Reykjavík í fyrstu Bæjarkeppninni síðan 1991 í Skautahöllinni á Akureyri.  Mjög létt yfirbragð var yfir þessari viðureign og varð úr hin mesta skemmtun.  Lið Akureyrar var með öðru sniði en hið nýlega krýnda Íslandsmeistaralið.  Í markinu var hinn kanadíski DJ Mikki Svangi, en Sæmundur Leifsson spilaði í stöð Center.  Sveinn Björnsson spilaði með liði Akureyrar líkt og hann gerði einnig árið 1991, en hann skoraði ekki, ekki frekar en hann gerði fyrir 20 árum.

MONDOR SKAUTABUXUR

Ég á til tvö stk. Mondor skautabuxur, nr 8 - 10 og 12 - 14.

Allý - allyha@simnet.is / 8955804