Fyrsti leikur á morgun
14.09.2007
SA spilar sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í meistaraflokki karla á morgun gegn Birninum í Egilshöllinni. Reikna má með erfiðum leik fyrir okkar menn þar sem þeir reykvísku hafa sett saman öflugara lið en sést hefur lengi í Grafarvoginum. Björninn er enn í sigurvímu eftir hraðmótið á dögunum og síðan stórsigur á Narfa í fyrsta leik mótsins nú á dögunum.