Æfingar á miðvikudag

Á miðvikudaginn verða æfingar sem hér segir: 15:15-16 = 3. flokkur, 16-17 = 4. flokkur, 17:30-18:15 = opinn tími fyrir byrjendur og 1. og 2. hóp, 18:15-19:15 = M og 5. hópur.

Á fimmtudaginn verða engar æfingar en á föstudaginn er reiknað með að æfingar byrji skv. nýrri tímatöflu sem birt verður á heimsíðunni eins fljótt og hægt er. Það verða örlitlar breytingar með flokkakskiptingar og kemur flokkaskiptingin inn á heimsíðuna á næstu dögum, þangað til gildir sú gamla.

Æfingar á morgun

Á morgun verður opinn dagur hjá öllum iðkendum sem æfðu í flokkum M, 5., 4. og 3. síðasta vetur milli 15:30 og 17:30. á þessum tíma verður líka hægt að skrá sig í deildina. Milli 17:30 og 18:15 verður svo opinn tími fyrir iðkenur 1. og 2. hóps í fyrra og einnig fyrir nýja iðkendur eða þá sem vilja koma og prófa. Á mogrun verður svo birt tafla yfir frekari æfingar vikunnar.

Bikarmót

Einsog kemur fram á vef  ihi.is

Skautadiskó og skráningar

Skautadiskó 

Skautadiskó á föstudagskvöldið 17. ágúst.  

Einnig eru opnir tímar í næstu viku. sjá nánar.

Viðbót í hokki fjölskylduna.

Enn bætist í S.A. fjölskylduna.  Elmar Magnússon og frú eignuðust strák fyrir nokkrum dögum, og fyrir nokkrum klukkstundum síðan bættu svo Denni og Mimmi 3 stráknum í safnið hjá sér. Ljóst er að framtíðin hjá S.A. er björt og ekki langur tími þangað til við sjáum þessa litlu snillinga stíga sín fyrstu spor.....á ísnum :)       

Ný stjórn hokkídeildar

Í gærkvöldi fór fram aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar fyrir fullu húsi.  Eitt af hefðbundnum aðalfundarstörfum er að kjósa nýja stjórn, sem var og gert í gærkveldi.  Nýja stjórn skipa eftirtaldir aðilar;

Einkatímar hjá Sönnu-Maiju!

Sanna-Maija mun bjóða upp á einkatíma fyrir þá sem áhuga hafa í æfingabúðunum. Til að panta tíma hjá henni er nóg að spyrja hana í lok ístíma í æfingabúðunum. Hún getur bæði lagað stökk, pírúetta, spor o.s.frv. og einnig prógröm (en ef á að gera prógröm þá verður iðkandinn að koma með útprentaðar lágmarkskröfur af síðu skautasambandsins). Einkatímarnir verða í framhaldi af æfingabúðunum eða milli 15 og 18. Hún tekur 700 kr. fyrir hverjar 15 mín, en hægt er að taka einkatíma í 15-30 mín. Þeir sem áhuga hafa skulu endilega notfæra sér þetta tækifæri þar sem Sanna hefur mikla reynslu af þjálfun og margar skemmtilegar og nýjar hugmyndir t.d. fyrir prógröm.

Fundur með þjálfurum skautaskóla

Á morgun kl. 11:30 verður fundur í fundarherbergi með þjálfurum skautaskólans þar sem farið verður yfir markmið námskeiðs og fyrirkomulag. Þeir þjálfarar eru: Sandra Ósk, Guðný Ósk, Ingibjörg, Sigrún Lind, Berglind Dóra og Telma. 

Aðalfundur hokkídeildar

Aðalfundur hokkídeildar verður haldin í Skautahöllinni fimmtudagskvöldið 9. ágúst kl. 20:00.

Skemmtileg ferð í Jarðböðin í gær!

Í gær fóru iðkendur æfingabúðanna ásamt þjálfurum og foreldrum í skemmtilega ferð austur. Stoppað var á 4 stöðum alls. Við byrjuðum á að skoða Goðafoss og keyrðum svo áleiðis að Námaskarði, þaðan lá leiðin í Jarðböðin við Mývatn og á endanum var stoppað á Grenjaðarstað þar sem hópurinn fékk leiðsögn frá Audrey, sem er safnvörður þar í sumar. Ekki var að sjá annað en að allir skemmtu sér konunglega og vonandi fer Nottingham gengið heim með fallegar minningar um Ísland og veru sína hér hjá okkur. Ég vil þakka öllum sem lögðu hönd á plóginn kærlega fyrir að gera þessa ferð mögulega.

Æfingabúðirnar ganga vonum framar og eru allir að ná miklum framförum. Joy, Karen og Tristan eru virkilega ánægð með alla iðkendurna. Þau hlakka til að koma aftur og ætla þá jafnvel að koma með stærri hóp skautara með sér.

Það er gaman að sjá hversu áhugasama og duglega krakka við eigum hér á Akureyri og er ég mjög stolt af þeim öllum! 

Það er svo frí hjá öllum á sunnudag og mánudag og á þriðjudaginn kemur svo Sanna-Maija Wiksten að þjálfa hjá okkur. Hún var Finnlandsmeistari fyrir nokkrum árum og keppti t.d. á bæði Evrópumótum og Heimsmeistaramótum. Hún þjálfar þessa stundina í Helsinki. Einnig munum við fá til okkar Hólmfríði Jóhannsdóttur sem mun sjá um af-ís kennslu. Hún er íþróttakennari, Gravity, Fit Pilates og Les Mills kennari og kennir þessa stundina hjá líkamsræktarstöðinni Bjargi.

Kv. Helga Margrét yfirþjálfari