Félagsmenn/konur athugið, hokkídeildina vantar að láni

Stórt ( langt ) rúm fyrir Josh Gribben, kanadíska leikmanninn okkar. Ef eitthvert ykkar getur hjálpað okkur með þetta endilega sendið þá póst á reynir@sasport.is eða hringið í Reynir gsm:6604888  takk, takk  (O:

Valkyrjurnar mættar til leiks !

Hjá Skautafélagi Akureyrar hefur nýtt lið hafið æfingar.  Liðið er opið fyrir allar konur sem hafa áhuga á íshokkí.  Æfingar eru kl. 10 á mánudagskvöldum og eru allar konur boðnar velkomnar á æfingar.  Allan búnað og græjur er hægt að fá lánað á staðnum.

FORELDRAFUNDUR

Fundur fyrir forráðarmenn barna í 1. og 2. hóp verður í Íþróttahöllinni, miðvikudagskvöldið 22.okt, kl 20.

Stutt kynning verður á starfi deildarinnar og þjálfarar kynntir.

Vonandi sjáum við sem flesta:)

Stjórnin

Könnun foreldrafélagsins hefur verið send út !

SR fór með tvo sigra frá Akureyri í 2.fl.

SRingar reyndust of stór biti fyrir ungt SA liðið og þeir unnu seinni leikinn með 7 mörkum gegn þremur.

Hópferð á ÍSS bikarmót A flokka og Haustmót eldri B flokka

Á foreldrafundi í vikunni var ákveðið að fara í hópferð á ÍSS bikarmót allra A flokka og Haustmót eldri B flokka, þ.e.a.s. 14 ára og yngri B, 15 ára og yngri B og 16 ára og eldri B.  Sjá nánar hér. 
 

Fyrri leikurinn tapaðist

SR vann leik gærkvöldsins með 6 mörkum gegn 2 SA.

2 leikir í Skautahöllinni á Akureyri nú um helgina

Í kvöld munu eigast við hér fyrir norðan SA og SR í 2.flokki. kl. 22.00 og svo aftur á morgum kl. 18.00.     2. flokks leikir eru sko engir "annarsflokks" leikir, heldur frábær skemmtun að horfa á svo nú er skorað á fólk að mæta og hvetja sína menn.   ÁFRAM SA .......

FRIÐARKERTI

Friðarkerti

 

Nú þegar skammdegið er skollið á höfum við ákveðið að taka upp friðarkertasölu.

Ágóðinn af sölunni er eyrnamerktur hverjum og einum og er ætlunin með þessari

 sölu sú að hjálpa fólki að safna upp í væntanlegar æfingabúðir næstkomandi sumar.

Pakkningin innheldur tvö kerti og er hún seld á 1000 krónur (500 kr. ágóði).

Kertin verða afgreidd í skautahöllinni á morgun laugardag á milli 11 og 13

og á sunnudaginn milli 17:30 og 19.

 

Hægt er að skila afgangskertum og verður tekið á móti þeim og peningunum verður svo sunnudaginn 2. nóv. klukkan 17:30

Sjáumst svo hressJ

                                                                                     Stjórnin

Helga Jóhanns keppir

Klukkan 18:45 í dag keppir Helga Jóhannsdóttir, SA á ISU Junior Gran Prix, en þær nöfnur Helga og Helga eru í Englandi, þar sem Helga keppir í Junior flokki kvenna fyrir Íslands hönd. Hægt er að fylgjast með henni í beinni útsengingu á netinu á slóðinni http://www.iceskating.org.uk/nisatvdemo