29.09.2014
UMFK-Esja er nýjasta liðið í deildinni og stundum nefnt "nýliðarnir"
29.09.2014
Víkingar báru sigurorð af SR-ingum í Laugardal síðastliðinn föstudag, lokatölur 3-6. Víkingar hafa því unnið 4 leiki í röð og sitja efstir í deildinni með 13 stig. Ásynjur sigruðu Björninn 2-3 með Gullmarki í framlenginu á laugardeginum í Egilshöll og 2. Flokkur tapaði sínum leik 9-2.
27.09.2014
Hokkíeyjan greinir frá DiMarkaregni (O:
25.09.2014
Frá og með næstu viku verða í boði opnir tímar fyrir iðkenndur á mánudögum kl 13.00-14.50 og fimmtudögum kl 13.00-15.00.
24.09.2014
Fyrsti innanbúða slagurinn í Íslandsmóti kvenna í Íshokkí fór fram í gærkveldi þegar Ásynjur mættu Ynjum. Lokatölur leiksins urðu 6-0 Ásynjum í vil. Leikurinn var hin mesta skemmtun þrátt fyrir nokkra yfirburði Ásynja en mikið var um fallegt spil.
23.09.2014
SA-Ynjur munu spila sinn fyrsta leik á þessu tímabili í kvöld kl. 19,30 og mótherjarnir eru SA-Ásynjur sem unnu Kvennalið Bjarnarins afar sannfærandi í 5:0 leik á laugardaginn síðasta. Nú verður spennandi að sjá hversu sterkar Ynjur koma inn og hvort þeim tekst að velgja Ásynjum undir uggum.
ÁFRAM SA ...........
23.09.2014
Nýliðna helgi var fyrsta mót Skautasambands Ísland í vetur og var það Haustmót. Alls fóru 19 keppendur frá Skautafélgi Akureyrar og stóðu allir sig með prýði. Fyrir nokkra keppendur var þetta þeirra fyrsta sambandsmót og voru þessir ungu og efnilegu keppendur félagi sínu til sóma.
22.09.2014
SA-Ásynjur tókur Kvennalið Bjarnarins í kennslustund í fyrsta leik sínum á tímabilinu og unnu þá viðureign 5-0. Ásynjur eru komnar til baka og Guðrún Blöndal og Birna Baldursdóttir aftur mættar til leiks eftir að hafa tekið sér pásu frá meistaraflokki bróður partinn af tímabilinu í fyrra.
22.09.2014
SA-Víkingar sigruðu Björninn um nýliðna helgi með 6 mörkum gegn 3. Víkingar telfdu fram tveimur nýjum leikmönnum en þó engum nýliðum í fjarveru Andra Más Mikaelsonar og Einars Valentin sem eru frá vegna meiðsla. Hinn mikli markaskorari Rúnar Freyr Rúnarsson reimaði aftur á sig skautanna og einnig Hilmar Leifsson sem er aftur kominn til starfa eftir framlengt sumarfrí.
20.09.2014
SA átti góðan dag í dag. Mfl. Karla vann sinn leik 6:3, Mfl. Kvenna vann sinn 5:0 og 4.fl vann báða sína leiki dagsins nokkuð sannfærandi á mótinu í Laugardalnum.