3. leikur á morgun í Egilshöllinni
06.03.2010
Á morgun kl. 14:00 mætast SA og Björninn í þriðju viðureign liðanna um Íslandsmeistaratitilinn 2010. Leikurinn fer fram í Egilhöllinni í Grafarvogi og aldrei þessu vant þá verður leikurinn sýndur beint á RÚV. Það verður án efa mikil stemning í höllinni því gera má ráð fyrir því að stuðningsmenn Bjarnarins reyni að fylla húsið enda glórulaust að gera eitthvað annað á sunnudegi kl. 14:00 en að mæta á hokkíleik.