Karfan er tóm.
Lesendur geta skráð sig á póstlista og fengið póst þegar ný krullufrétt er sett á vefinn.
Önnur umferð Marjomótsins í krullu fór fram í kvöld. Víkingar hafa þegar tryggt sér sigur í B-riðli. ÓKEI og H2 berjast um efsta sætið í A-riðli.
3, kvenn og meist flk spila saman þriðjudag kl 1900-2100 og fimmtudag kl 2100-2230
Mammútar héldu uppteknum hætti í lokaleik íslandsmótsins á laugardag og sigruðu
Víkinga 9 -3
Mammútar byrjuðu á að skora eitt stig í fyrstu umferð en Víkingar svöruðu með tveimur stigum í næstu umferð og stálu svo einu stigi í þeirri þriðju. Þá sögðu Mammútar hingað og ekki lengra og skoruðu tvö stig í fjórðu umferð og “stálu” svo fimmtu og sjöttu með þremur stigum í hvorri umferð þannig að leikurinn endaði 9-3 fyrir Mammúta.
Mammútar eru vel að þessum sigri komnir en þeir töpuðu aðeins einum leik og gerðu eitt jantefli í forkeppninni og unnu alla þrjá leiki sína í úrslitunum.
FRÁBÆR ÁRANGUR.
Leikur Norðan 12 og Garpa um þriðja sætið fór 5 – 3 fyrir Norðan 12 .
Leikurinn spilaðist þannig að N12 skoraði eitt stig í fyrstu umferð og tvö í næstu umferð og eitt í þeirri þriðju og fjórðu og staðan því orðin 5-0 eftir fjórar umferðir. Garpar áttu síðasta stein í fimmtu lotu og gátu skorað 5 stig en ísinn réði ferðinni í því skoti og Garpar færðu einn stein N12 nokkra sentimetra innar í hring en tveir steinar Garpa voru þannig að Garpar fengu aðeins tvö stig í þeirri umferð og eftirleikurinn auðveldur fyrir N12
Garpar skoruðu eitt stig í síðustu umferð og leikurinn endaði því 5 - 3 fyrir N12.
Lokastaðan í íslandsmótinu árið 2008 varð þannig:
Íslandsmeistarar Mammútar
Annað sæti Víkingar
Þriðja sæti Norðan 12
Krulluvefurinn óskar verðalaunahöfum til hamingju með árangurinn.