Karfan er tóm.
Foreldrafundirnir LSA verða þrískiptir í ár. Foreldrafundur fyrir byrjendur, þar verður farið yfir grunnatriði hvað varðar iðkun listhlaups. Foreldrafundir lengra komna iðkenda verður tvískiptur, A og B hópa og svo C hópa. Mikilvægt er að foreldrar iðkenda listhlaupadeildar mæti því farið er yfir skautaveturinn sem framundan er, hvað verður að gerast í vetur, hvaða dagsetningar er mikilvægt að muna, verða grunnpróf í desember.
Foreldrafundur C-hópa verður mánudagskvöldið 11 október klukkan 20.00-21:00, fundarherbergi SA
Foreldrafundur byrjenda (D-hópa) verður miðvikudaginn 13 október klukkan 16:40-17:20, fundarherbergi SA
Foreldrafundir A og B hópa verður miðvikudagskvöldið 13 október klukkan 20.00-21:00, fundarherbergi SA
Í kvöld mættust Jötnarnir og Björninn hér í Skautahöllinni, en þetta var fyrsti heimaleikur Jötnanna. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda. Liðin skiptust á að skora og aldrei skyldi meira en eitt mark liðin að. Björninn bar þó sigur úr býtum, 6 – 5 í leik þar sem allt gat gerst.
Það var Josh Gribben sem opnaði markareikninginn með “wrap around-i” óstuddur. Trausti Bergmann jafnaði leikinn tveimur mínútum síðar og leikar stóðu jafnir 1 – 1 eftir fyrstu lotu. Það var svo brimbrettakappinn og bílabónarinn Úlfar Andrésson sem náði forystunni fyrir gestina í “power play” um miðbik 2. lotu en alls urðu mörkin 6 talsins í lotunni, þrjú hjá hvoru liði. Hinn ungi og efnilegi Sigurður Reynisson jafnaði leikinn skömmu síðar eftir frákast frá Jóni Gíslasyni, en þess má geta að Reynisson er í 3. flokki og aðeins 15 ára gamall. Hin mörk Jötnanna í lotunni skoruðu Jón Gíslason og Orri Blöndal. Mörk Bjarnarins skoruðu Brynjar Bergmann, litli bróðir Trausta, og svo kom Úlli með annað.