Staðan í Íslandsmóti meistaraflokks karla

eins og hún er í dag , smelltu á meira hér niðri í horninu til að sjá stöðuna.

Úrtöku helgi kvennalandsliðs

Æfingar á ís eru sem hér segir, fös. 18.feb. kl. 21.30 til 22.30 lau. 19.feb. kl. 06.30 til 07.30 og sun. 20.feb. kl. 07.30 til 08.30.

Leikir helgarinnar í höllinni okkar hér fyrir norðan eru svo í Mfl.karla Narfi - Björninn lau. kl. 17.00 í Mfl.kvenna SA - Björninn lau. kl. 20.00 og á sunnudag kl. 10.00 Björninn - Narfi í mfl.karla.

Andlát

Magnús Einar Finnsson, formaður Skautafélags Akureyrar, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 13. febrúar.

Skautafélag Akureyrar vottar eftirlifandi eiginkonu hans, fjölskyldu og öðrum aðstandendum sína dýpstu samúð.

Stjórn Skautafélags Akureyrar.

S.A. Rótburstaði björninn!!!

Meistaraflokkur S.A. fór til Reykjarvíkur að keppa við björninn. Fyrirfram var haldið að um erfiðan leik að ræða því S.A. mætti ekki með sitt sterkasta lið vegna leikbanna og meiðsla leikmanna. Hinnsvegar miðað við leik liðsins gegn Birninum mætti halda að S.A. höfðu mætt með sitt sterkasta lið lokatölur 14-5!! Bjarnarmenn áttu engin svör við "rauða herinn" og sýndu S.A. menn að þeir eru alls ekki "búnir á því" einsog fólk heldur úti í bæ. Mörk S.A. voru skoruð af Tibor 5, Bjössi 3, Gummi 3, Steini 2, og enginn annar en Simmi skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokki. Ómar smári stóð á milli stanganna og átti hann stórleik í markinu. Reyndar áttu allir leikmenn liðsins góðan leik.ÁFRAM S.A:!!!!!!

Þelamerkurferð FELLUR NIÐUR

Það fengust ekki nægjanlega margir foreldrar til fararinnar svo að því miður verðum við að aflýsa ferðinni. SORGLEGT en satt.

kv.........Stjórn Foreldrafélags

Leikir!!

Meistaraflokkur S.A. og 3 flokkur fer suður um helgina að keppa við Björninn. Ekki er vitað klukkan hvað hann er en frétt um það kemur síðar. ÁFRAM S.A.

Þelamerkurferð um helgina

5. 6. og 7. flokk er boðið að koma að Þelamörk laugardagskvöldið 12. feb. kl. 18.30.

Þar munu krakkarnir leika sér í salnum, fara í sund og fá pizzu og kók og gista. Það sem þarf að taka með er: Dýna, svefnpoki, náttföt, tannbursti, sundföt, handklæði, leikfimiföt og morgunmat. Sælgæti er bannað. Foreldrar sjá um að keyra og sækja börnin. Ferðin er ókeypis og verður farin með þeim fyrirvara að við fáum einhverja foreldra með.

Foreldrafélagið

Öðrum hluta íslandsmóts 4.Fl. lokið

Um tvö leitið í gær sunnudag lauk öðrum hluta íslandsmeistaramóts í 4.fl. sem hófst hér á Akureyri síðasta föstudag. Mótið tókst í alla staði mjög vel og viljum við þakka öllum gestaspilurum og þeirra fólki fyrir skemmtilega hokkí helgi.

SA tapaði fyrir Birninum 2 - 5

Nú er fyrsta leiknum lokið og varð SA að lúta í lægra haldi þrátt fyrir þrumugóða byrjun þar sem þeir náðu ágætis forskoti í fyrsta leikhluta.

4.fl. SA - Björninn í kvöld klukkan 21.15

Byrjunar leikurinn í öðrum hluta Íslandsmótsins í 4. flokki er í kvöld kl. 21.15 og það eru SA og Björninn sem þá eigast við, endilega verið dugleg að mæta og mynda góða stemmingu. sjá dagskrá hér til hliðar