16.10.2007
Á morgun, miðvikudaginn 17. október verður smá breyting á æfingatíma 5. og 6. hóps vegna undirbúnings undir Haustmótið um næstu helgi. Þeir sem keppa í 12 ára og yngri A, Novice og Junior skulu mæta á ísinn milli 19 og 20 en þeir úr 5. og 6. hópi sem ekki fara suður (keppendur í 14 ára og yngri B og 15 ára og eldri B) skulu mæta milli 18:10 og 19.
15.10.2007
Einsog fram kemur á vef ihi
14.10.2007
Kvennalið SA vann aftur Bjarnarkonur með og nú með 11 mörkum gegn 3 leikurinn var í beinni á vefnum og
sjá má gang leiksins hér. 2.fl. SA tapaði hinsvegar fyrir Birninum með 3 mörkum gegn 4 og
hægt er að skoða þann leik hér. Áfram SA (O: :O)
14.10.2007
Hérna koma úrslitin frá Sparisjóðsmótinu. Hjá yngri flokkum eru ekki birt fleiri en 3 sæti og hinar sem á eftir koma eru taldar upp í stafrófsröð. Öll sæti eru birt hjá 14 ára og yngri B, 15 ára og eldri B, Novice og Junior
14.10.2007
Foreldrafundur verður haldinn í Skautahöllinni á Akureyri kl:20 með foreldrum þeirra iðkenda sem eru að fara suður um næstu helgi. Einnig minnum þá sem eiga eftir að borga keppnisgjöldin fyrir það mót að gera það hið fyrsta.
14.10.2007
Næsti opni tími er 7. nóv. frá 16:30-17:10. í millitíðinn er hægt að hafa samband við stjórnina, netföng og símanúmer eru á sasport.is. Við erum að vinna í æfingagjöldum svo að það má fara að búast við rukkunum. Einnig minnum við þá á sem eru með ávísanir frá Akureyrarbæ að hafa samband við Önnu
annagj@simnet.is
14.10.2007
Engar æfingar verða í kvöld hjá 4. 5. og 6. hóp. Venjulegar æfingar í næstu viku.
14.10.2007
Enginn sporatími verður á þriðjudagsmorguninn næsta vegna aukaæfingar fyrir keppendur á Haustmóti. Þeir iðkendur sem keppa í flokkum 14 ára og yngri B og 15 ára og eldri B fá samslags aukaæfingu fyrir Haustmótið sem haldið verður í nóvember á Akureyri.
Þeir iðkendur sem keppa í eftirtöldum flokkum munu um næstu helgi keppa á Haustmóti í Egilshöll: Junior, Novice, 12 ára og yngri A, 12 ára og yngri B, 10 ára og yngri B og 8 ára og yngri B.
Næsta þriðjudagsmorgun kl. 06:30 - 07:30 skulu þeir iðkendur sem keppa í Junior, Novice og 12 ára og yngri A mæta á æfingu. Á þessari æfingu verður farið yfir prógröm með lagi og tímanum skipt jafnt milli iðkenda. Mjög mikilvægt er að allir í þessum keppnisflokkum mæti.
Næsta fimmtudagsmorgun verður svo aukaæfing kl. 06:30-07:30 fyrir iðkendur sem keppa í 12 ára og yngri B, 10 ára og yngri B og 8 ára og yngri B.
13.10.2007
Í gærkvöldi spiluðu SA stelpur við kvennalið Bjarnarins í Egilshöll og unnu þann leik með 10 mörkum gegn 3. Strax á eftir spilaði 2.fl. sömu liða og þann leik vann SA með 8 mörkum gegn 3 Bjarnarmanna. Góóóóðir SA ......................
13.10.2007
Sparisjóðsmótið hefst á morgun kl. 8. Röð flokka verður sem hér segir: 8 ára og yngri B, 10 ára og yngri B, 12 ára og yngri B, 14 ára og yngri B, 15 ára og eldri B, 12 ára og yngri A, Novice og Junior. Allir keppendur í 8, 10 og 12 ára og yngri B skulu mæta ekki seinna en 07:30 í fyrramálið. Aðrir keppendur skulu mæta ekki seinna en kl. 8. Mjög mikilvægt er að allir mæti á tilsettum tíma svo þeir hafi tíma til að hita upp afís!