Íslandsmótið í krullu: Skráningu lýkur 31. janúar, keppni hefst 4. febrúar

Íslandsmótið í krullu 2008 er á næsta leiti en skrá þarf lið til leiks í síðasta lagi fimmtudaginn 31. janúar.

Bikarmótið: Hallgrímur sá eini sem hefur unnið tvisvar

Fjórða Bikarmóti Krulludeildar lýkur með úrslitaleik miðvikudagskvöldið 30. janúar. Bikarmótið var fyrst haldið 2004. Nú er keppt um bikar sem gefinn var til minningar um Magnús E. Finnsson.

Bikarmótið 2007: Fífurnar í fyrsta sinn í úrslit

Fífurnar og Skytturnar mætast í úrslitaleik Bikarmótsins á miðvikudagskvöld.

Öskudagur!

Á miðvikudaginn 6. febrúar er Öskudagsball fyrir 1. og 2. hóp á æfingatíma. Foreldrar, systkini og vinir eru velkomnir með á ísinn og geta fengið lánaða skauta í höllinni að kostnaðarlausu. Við viljum þó benda á að afístíminn fellur niður þann dag. Iðkendur annarra flokka koma að sjálfsögðu líka í búningum og verða æfingar hjá þeim á venjulegum tíma. Hlökkum til að sjá alla.

Æfingar falla niður dagana 8.-10. febrúar

Vegna Norðurlandamóts í Listhlaupi dagana 7.-10. febrúar falla allar æfingar niður hjá öllum flokkum listhlaupadeildar þá helgina, þ.e.a.s. föstudag-sunnudag 8.-10. febrúar. Við viljum einnig benda á það að enn er hægt að skrá sig í ferð á Norðurlandamótið en skráning þarf að hafa borist fyrir fimmtudaginn nk. Sjá eldri frétt fyrir neðan.

Breyting á afístímum hjá 4.-6. hóp!

Vegna keppnisferða verður að færa afístíma með Söruh Smiley hjá 4.-6. hóp á föstudögum yfir á miðvikudaga. Afís verður því óbreyttur á mánudögum  en föstudagstímar færast yfir á miðvikudaga. Þó mun hún aðeins kenna annan hvern miðvikudag. Tímarnir á miðvikudögum verða sem hér segir: 4. hópur milli 18:15 og 19, 5. hópur milli 19:05 og 19:50 og 6. hópur milli 20 og 20:45. Kennt verður eftirtalda miðvikudaga: 30. janúar, 13. febrúar, 27. febrúar og 5. mars.

Öskudagspökkun

Iðkendur og foreldrar athugið

Nú er hafin okkar árlega nammipökkun og vonumst við til þess að sem flestir sjái sér fært að hjálpa til (líka foreldrar)þar sem þetta er okkar aðal fjáröflun fyrir félagið. Við munum líklega skipta þessu eitthvað á milli hópanna þannig að einn hópur sé í einu að pakka. Einnig vantar okkur hrausta foreldra til þess að keyra út í fyrirtækin.

Á næsta þriðjudag munum við óska eftir hjálp frá börnum í 3ja hóp (send sms). Við munum líklega ekki byðja 1og 2 hóp en ef það eru einhverjir sem vilja fá að vera með í þessum hópum þá endilega hringja í Allý s:895-5804 eða Kristínu s:864-4639. 

kveðja Allý og Kristín

IIHF fréttir

Gaman að segja frá því að Grikkir eru aftur komnir með lið, og munu keppa um laust sæti á HM í þriðjudeild sem haldið verður í Luxemborg. Liðin sem þeir keppa við um laust sæti eru Bosnia og Armenia. Hér er linkur á "rosterinn" hjá þeim. Athygli vekur að það eru ekkert rosalega margir leikmenn liðsins fæddir í Grikklandi. hmmm.........

http://www.icehockey.gr/team/roster.htm

Ice Cup: Óskað eftir gistingu í heimahúsi

Þreifingar eru í gangi varðandi komu erlendra keppenda á Ice Cup og er þörf á gistingu í heimahúsi fyrir eitt liðið.

SA vann aftur

Seinni leikurinn fór 5 - 4 fyrir SA.     Góóóóðir SA ...................  Sjá má gang leiksins hér.