23.01.2012
Ynjur og Ásynjur munu eigast við annað kvöld kl. 20,30 hér í Skautahöllinni. Ynjur hafa vaxið gífurlega í getu og menn (og konur) bíða spennt eftir að þær leggi eldra liðið þ.e. Ásynjur svo það er óhætt að lofa góðri skemmtun í Höllinni á þessum leik. ALLIR að mæta og hvetja sitt lið. ÁFRAM SA .......
22.01.2012
Ísland vann Kína með 5 mörkum gegn 1 og tryggði sér þar með sæti í 2. deild að ári.
20.01.2012
Þeir sem vilja panta æfingagalla geta farið niðrí 66°Norður á Glerártorgi, mátað og sent síðan pöntun á jona@nordlenska.is. Næsta pöntun verður send í lok janúar. Félagspeyurnar eru úr powerstretch flís, þær eru rauðar fyrir stelpurnar en fyrir strákana eru þær svartar. Peysurnar eru merktar með logo-i skautafélagsins og hægt er að merkja með nafni líka. Buxurnar eru svartar og úr powerstretch. Upplýsingar um verð eru undir tenglinum "Félagspeysur og skautafatnaður" hér til vinstri.
20.01.2012
Leikurinn endaði 10 - 0 fyrir Ísland.
19.01.2012
SA-Ynjur fá SR-stúlkur i heimsókn föstudagskvöldið 20. kl. 22,00. Skyldumæting fyrir alla áhugaMENN.....(;
ÁFRAM SA ......
19.01.2012
Enn einusinni er komið að þessari STÓRVEISLU í íslenska hokkíheiminum sem barnamótin eru ávallt.
19.01.2012
Í morgun kl. 6 að okkar tíma lögðu "strákarnir okkar" heimamenn með 7 mörkum gegn 1.
18.01.2012
Æfingar hjá öllum flokkum falla niður laugardaginn 21.janúar og sunnudagsmorguninn 22.janúar.
17.01.2012
U20 landslið íslands var rétt í þessu að klára lið Tyrkja 8-0.
Hér er hægt að fylgjast með textalýsingu á leikjum Íslands.
http://www.iihf.com/channels1112/wm20-iii/statistics.html
09.01.2012
Enn eru til nokkrar skautatöskur